Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 247/2020

Nr. 247/2020 9. mars 2020

REGLUR
um breytingu á reglum nr. 1042/2003 um inntöku nýnema í læknisfræði og sjúkraþjálfunarfræði í læknadeild Háskóla Íslands.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 5. gr. reglnanna:

  1. 2., 3. og 4. málsliður 2. mgr. orðast svo: Gildi þessara prófhluta er 30% af heild. Þessir próf­hlutar verða á formi krossaprófs en stuttar ritgerðir geta einnig verið í spurningum um siðfræði­leg álitamál. Þessir prófhlutar byggja ekki á ákveðnu námsefni.
  2. 1. málsliður 3. mgr. orðast svo: Í hinum prófhlutunum, sem gilda 70% af heildinni, verða lagðar fyrir krossaspurningar.

 

2. gr.

Reglur þessar, sem háskólaráð Háskóla Íslands hefur samþykkt, að fenginni tillögu heilbrigðis­vísindasviðs, eru settar samkvæmt heimild í 3. mgr. 18. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla, sbr. 9. mgr. 102. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009. Reglurnar öðlast þegar gildi.

 

Háskóla Íslands, 9. mars 2020.

 

Jón Atli Benediktsson.

Þórður Kristinsson.


B deild - Útgáfud.: 24. mars 2020