Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1251/2015

Nr. 1251/2015 15. desember 2015

GJALDSKRÁ
fyrir meðhöndlun úrgangs í Reykjavíkurborg.

1. gr.

Innheimta skal gjald fyrir meðhöndlun úrgangs í Reykjavíkurborg svo sem nánar greinir í gjaldskrá þessari.

2. gr.

Gjald fyrir blandaðan heimilisúrgang:

Gjaldflokkur
 nr.
Tegund íláts og hirða     kr./ílát á ári
A.1 120 l spartunna, sótt minna en 15 metra frá sorphirðubíl á 14 daga fresti 11.800
A.2 120 l spartunna, sótt meira en 15 metra frá sorphirðubíl á 14 daga fresti 16.000
A.3 240 l grá tunna, sótt minna en 15 metra frá sorphirðubíl á 14 daga fresti 21.300
A.4 240 l grá tunna, sótt meira en 15 metra frá sorphirðubíl á 14 daga fresti 26.500
A.5 660 l ker, sótt minna en 15 metra frá sorphirðubíl á 14 daga fresti 58.575
A.6 660 l ker, sótt meira en 15 metra frá sorphirðubíl á 14 daga fresti 72.875

Gjald fyrir flokkaðan heimilisúrgang, pappírsefni: 

Gjaldflokkur
nr.
Tegund íláts og hirða     kr./ílát á ári
B.1 240 l blá tunna, sótt minna en 15 metra frá sorphirðubíl á 21 dags fresti   8.500
B.2 240 l blá tunna, sótt meira en 15 metra frá sorphirðubíl á 21 dags fresti 11.900
B.3 660 l blátt ker, sótt minna en 15 metra frá sorphirðubíl á 21 dags fresti 23.375
B.4 660 l blátt ker, sótt meira en 15 metra frá sorphirðubíl á 21 dags fresti 32.725

Gjald fyrir flokkaðan heimilisúrgang, plastefni: 

Gjaldflokkur
nr.
Tegund íláts og hirða     kr./ílát á ári
C.1 240 l græn tunna, sótt minna en 15 metra frá sorphirðubíl á 21 dags fresti   8.400
C.2 240 l græn tunna, sótt meira en 15 metra frá sorphirðubíl á 21 dags fresti 11.800
C.3 660 l grænt ker, sótt minna en 15 metra frá sorphirðubíl á 21 dags fresti 23.100
C.4 660 l grænt ker, sótt meira en 15 metra frá sorphirðubíl á 21 dags fresti 32.450

Sorphirðugjaldi er ætlað að standa undir kostnaði við sorpílát, hirðu og förgun sorps.

Merktir pokar fyrir tilfallandi umfram blandaðan úrgang: 750 kr./stk.

Merktir pokar fyrir tilfallandi umfram pappírs- eða plastúrgang: 500 kr./stk.

Gjald fyrir aukalosun blandaðs úrgangs: 3.790 kr./ferð auk 570 kr./ílát sem losað er.

Gjald fyrir aukalosun pappírs- eða plastúrgangs: 3.790 kr./ferð auk 570 kr./ílát sem losað er.

Gjald vegna reksturs endurvinnslustöðva: 7.980 kr./íbúð. Gjaldi vegna endurvinnslustöðva er ætlað að standa undir kostnaðarhlutdeild Reykjavíkurborgar í rekstri endurvinnslustöðva Sorpu bs.

Umsýslugjald vegna breyttrar þjónustu, aksturs og skráningar sorpíláta, er 3.100 kr. fyrir hvert sinn sem óskað er breytinga.

3. gr.

Um innheimtu gjalda fer samkvæmt 25. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og 11. gr. laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs. Gjöld samkvæmt gjaldskránni má innheimta með fjárnámi. Innheimtudeild Reykjavíkurborgar annast innheimtu gjalda skv. gjaldskrá þessari.

4. gr.

Gjalddagi gjalda skv. 2. gr. er útgáfudagur reiknings og eindagi 30 dögum síðar. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga, séu gjöld ekki greidd á eindaga.

5. gr.

Gjaldskrá þessi er samin og samþykkt af borgarráði Reykjavíkurborgar með heimild í 23. gr. laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs og 25. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunar­varnir, með síðari breytingum og öðlast gildi við birtingu. Um leið fellur úr gildi gjaldskrá fyrir sorphirðu í Reykjavíkurborg, nr. 1270/2013.

Borgarstjórinn í Reykjavík, 15. desember 2015.

Dagur B. Eggertsson.


B deild - Útgáfud.: 6. janúar 2016