Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur samþykkt breytingu á deiliskipulagi sem hér segir:
Lækjarhlíð 1A, Íþróttamiðstöðin Lækjarhlíð. Breytingin felst í að lóðin og byggingarreitur hennar eru stækkuð til vesturs, S-3V, vegna fyrirhugaðrar viðbyggingar við íþróttamiðstöðina. Lóðin stækkar um 559 m². Fyrirhugað byggingarmagn viðbyggingar verður að hámarki 1.000 m² í kjallara og jarðhæð.
Íþróttasvæði við Varmá – knatthús. Breytingin felst í að á reit D verður leyfilegt að byggja fjölnota knatthús. Reitamörk D færast um 3 metra í átt að reit E. Svæði milli reita D og E breikkar um 8 metra. Gönguleiðum er hliðrað til, reitur E minnkar um 2 metra. Byggingarreitur á reit D (b12) verður stækkaður, en reiturinn liggur að byggingarreitum b6, b8 og b10.
Ofangreindar breytingar hafa hlotið meðferð sem skipulagslög nr. 123/2010 mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.
F.h. Mosfellsbæjar, 5. apríl 2018,
Ólafur Melsted skipulagsfulltrúi.
|