Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 641/2018

Nr. 641/2018 8. júní 2018

REGLUR
um breytingu á reglum nr. 569/2009 fyrir Háskóla Íslands.

1. gr.

Á eftir 4. málsl. 1. mgr. 57. gr. reglnanna bætist við nýr málsliður, svohljóðandi: Í námskeiðum sem kennd eru tiltekinn hluta misseris getur þó gilt sérstakur frestur til úrsagnar úr prófi, samkvæmt nánari ákvörðun prófstjóra í samráði við deildir, og skal fresturinn þá koma fram í upplýsingum um viðkomandi námskeið í kennsluskrá.

2. gr.

Reglur þessar, sem samþykktar hafa verið í háskólaráði Háskóla Íslands, eru settar í samræmi við lög nr. 85/2008 um opinbera háskóla. Reglurnar öðlast þegar gildi.

Háskóla Íslands, 8. júní 2018.

Jón Atli Benediktsson.

Þórður Kristinsson.


B deild - Útgáfud.: 22. júní 2018