Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1258/2017

Nr. 1258/2017 18. desember 2017

REGLUR
um breytingu á reglum nr. 140/2014 um meistaranám við heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 19. gr. reglnanna:

  1. 1. málsl. 2. mgr. I. liðar orðast svo: Framhaldsnámsnefnd hefur umsjón með MS-námi í hagnýtri sálfræði.
  2. 2. mgr. II. liðar orðast svo:
      Við mat á umsóknum er tekið mið af námsárangri, einkunnum, viðtölum, greinargerð umsækjanda um náms- og starfsmarkmið, meðmælum, sem og aðstæðum deildar til að veita viðeigandi aðstöðu og leiðsögn. Aðgangur nemenda að MS-námi í hagnýtri sálfræði er háður sérstökum fjöldatakmörkunum sem háskólaráð samþykkir.
  3. Í stað orðsins „Þrjú“ í upphafi 3. málsl. 3. mgr. III. liðar kemur: Fjögur.
  4. Á eftir 3. málsl. 3. mgr. III. liðar bætist við nýr málsliður, svohljóðandi: Kjörsviðið klínísk sálfræði uppfyllir skilyrði reglugerðar nr. 1130/2012 um menntun til að hljóta starfsleyfi sem sálfræðingur.
  5. 4. mgr. III. liðar fellur brott.

2. gr.

Reglur þessar eru settar af háskólaráði með heimild í 3. mgr. 18. gr. laga um opinbera háskóla nr. 85/2008. Reglurnar hafa verið samþykktar af sálfræðideild og stjórn heilbrigðisvísindasviðs, auk Miðstöðvar framhaldsnáms, sbr. 66. og 69. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009. Reglurnar taka gildi frá og með háskólaárinu 2018-2019.

Háskóla Íslands, 18. desember 2017.

Jón Atli Benediktsson.

Þórður Kristinsson.


B deild - Útgáfud.: 5. janúar 2018