Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1199/2018

Nr. 1199/2018 17. desember 2018

REGLUGERÐ
um eingreiðslur til lífeyrisþega árið 2019.

1. gr.

Gildissvið og framkvæmd.

Reglugerð þessi gildir um eingreiðslur til elli-, örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega á árinu 2019.

Orlofsuppbætur skulu greiddar 1. júlí og desemberuppbætur skulu greiddar 1. desember.

Tryggingastofnun ríkisins annast framkvæmd reglugerðarinnar.

2. gr.

Eingreiðslur til örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega.

Orlofsuppbót til örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega skal nema 20% af fjárhæð tekjutryggingar lífeyrisþega skv. 22. gr. laga nr. 100/2007, um almannatryggingar, og fjárhæð heimilisuppbótar örorkulífeyrisþega skv. 3. mgr. 8. gr. laga nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, miðað við 1/12 af greiðslurétti lífeyrisþega síðustu 12 mánuði fyrir greiðslu uppbótarinnar.

Desemberuppbót til örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega skal nema 30% af fjárhæð tekju­trygg­ingar og heimilisuppbótar lífeyrisþega, sbr. 1. mgr. Fjárhæð desemberuppbótar reiknast miðað við 1/12 af greiðslurétti lífeyrisþega á árinu 2019.

3. gr.

Eingreiðslur til ellilífeyrisþega.

Full eingreiðsla til ellilífeyrisþega skal nema 93.555 kr. Skal 40% þeirrar fjárhæðar greiðast 1. júlí sem orlofsuppbót og 60% fjárhæðarinnar 1. desember sem desemberuppbót.

Eingreiðsla skal lækka um 2% af tekjum lífeyrisþega, sbr. 16. og 23. gr. laga um almannatryggingar, uns hún fellur niður. Lækkun vegna tekna tekur þó ekki til eingreiðslu á hálfan ellilífeyri sem greiddur er skv. 4. mgr. 17. gr. sömu laga þar til lífeyristaka hefst að fullu.

Um áhrif búsetu, frestun og flýtingu á töku lífeyris á fjárhæð eingreiðslna skv. 1. mgr. fer skv. 17. gr. laga um almannatryggingar.

Þeir sem fá greiddan hálfan ellilífeyri skv. 4. mgr. 17. gr. laga um almannatryggingar skulu fá hálfar eingreiðslur samkvæmt 1. mgr.

Hafi ellilífeyrisþegi fengið greiddar bætur hluta úr ári skulu eingreiðslur til hans skv. 1. mgr. greiddar í hlutfalli við greiðsluréttindi hans.

Ef fyrir liggur að eingreiðsla í júlí hafi verið of- eða vangreidd skal það leiðrétt við eingreiðslu desembermánaðar og gilda ákvæði 55. gr. laga um almannatryggingar eftir því sem við á.

4. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 70. gr., sbr. 69. gr., laga nr. 100/2007, um almanna­tryggingar, með síðari breytingum, og 14. gr. laga nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, með síðari breyt­ingum, öðlast gildi 1. janúar 2019. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1196/2017, um eingreiðslur til lífeyrisþega árið 2018, með síðari breytingu.

Velferðarráðuneytinu, 17. desember 2018.

Ásmundur Einar Daðason
félags- og jafnréttismálaráðherra.

Hanna Sigr. Gunnsteinsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 20. desember 2018