1. gr.
Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist tveir nýir töluliðir, 132. og 133. tölul., svohljóðandi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/900 frá 12. maí 2025 um breytingu á V. og XIV. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/404 að því er varðar færslurnar fyrir Kanada, Breska konungsríkið og Bandaríkin í skránum yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða svæði þeirra sem hafa heimild til að flytja inn sendingar af alifuglum, kímefnum úr alifuglum og nýju kjöti af alifuglum og veiðifuglum til Sambandsins.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/899 frá 19. maí 2025 um breytingu á IV. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/404 að því er varðar færsluna fyrir Taíland í skránni yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða svæði þeirra sem hafa heimild til að flytja inn sendingar af dýrum af hestaætt til Sambandsins.
2. gr.
Framkvæmdarreglugerðirnar sem nefndar er í 1. gr. eru birtar á ensku í C-deild Stjórnartíðinda, sem fylgiskjöl við auglýsingu nr. 18/2025.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum um matvæli, nr. 93/1995, lögum um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, nr. 22/1994, og lögum um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, nr. 25/1993.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvegaráðuneytinu, 26. maí 2025.
F. h. r.
Bryndís Hlöðversdóttir.
|