Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 909/2019

Nr. 909/2019 30. september 2019

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 822/2004 um gerð og búnað ökutækja.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar eru gerðar á lið 07.01 um ljósker í 7. gr.:

  1. Skilgreining á „Auka háljósker“ í tölulið (1) um aðalljós skal vera eftirfarandi:
    Auka háljósker: Ljósker skulu tengd öðrum háljóskerum og kvikna skal á þeim samtímis áskildum háljóskerum eða um sérstakan rofa. Þegar um er að ræða tvö pör aukaháljóskera mega þau ekki loga samtímis. Einnig er heimilt að hafa aðeins eitt aukaháljósker í stað pars auka­háljóskera, og skal það þá vera í lóðréttu breiddar­miðplani ökutækisins. Þegar skipt er af háljósum á lágljós skulu öll háljósin slokkna samtímis. Aukaháljós skulu staðsett framar en ökumaður. Að öðru leyti gilda sömu ákvæði og um áskilin háljósker.
  2. Í stað orðanna „Ljóskerin skulu vera byrgð þegar þau eru ekki í notkun“ í tölulið (11) um ljóskastara kemur:
    Fjöldi: Einn eða tveir. Ef einn ljóskastari er notaður skal hann vera í lóðréttu breiddar­miðplani ökutækisins.
  3. Skilgreining á „Tíðni“ í tölulið (12) um neyðarakstursljós í lið 07.01 um ljósker í 7. gr. skal vera eftirfarandi:
    Tíðni: Blikktíðni skal vera á milli 60 og 240 leiftur á mínútu. Þó er heimilt að hafa eingöngu blá ljós án blikktíðni (sólir) til að auka sýnileika neyðarakstursökutækis þegar neyðarakstur á sér ekki stað t.d. að næturlagi og við fjölmennar samkomur. 

2. gr.

Við lið 07.02 um glitaugu og endurskinsmerki í 7. gr. bætast eftirfarandi töluliðir:

  1. (8) Sérstakar glitmerkingar.
    Glitmerkingar ökutækja í neyðarakstri skulu vera sem hér segir:
    Litasamsetningar:
    Ökutæki lögreglu: Gulur og blár.
    Ökutæki slökkviliðs: Gulur og rauður.
    Ökutæki til sjúkraflutninga: Gulur og grænn.
    Ökutæki björgunarsveita: Gulur og appelsínugulur.
    Óheimilt er að hafa framvísandi rauða glitmerkingu og afturvísandi hvíta glitmerkingu, nema um sé að ræða viðvörunarglitmerkingar.
    Lögun: Raðir af viðeigandi litum til skiptis. Önnur ökutæki en fólksbifreiðar skulu hafa fer­hyrnt glit á hlið, viðvörunarglitmerkingar skv. lið 07.02 (7) að framan og/eða aftan.
    Viðurkenning og merkingar: Ekki er gerð krafa um viðurkenningu á sérstökum glitmerk­ingum, en viðvörunarglitmerkingar skulu vera viðurkenndar og merktar samkvæmt ECE-reglum nr. 70 og 104.
    Stærð merkinga: Hver flötur skal vera að lágmarki 40 x 40 mm.
  2. (9) Undanþága.
    Samgöngustofa getur veitt ökutækjum í neyðaraksti undanþágu frá merkingum eða heimild til frekari merkinga og annarrar gerðar þeirra en kveðið er á um í reglugerð þessari.

3. gr.

Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 60. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 30. september 2019.

Sigurður Ingi Jóhannsson.

Ragnhildur Hjaltadóttir.


B deild - Útgáfud.: 18. október 2019