Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1281/2020

Nr. 1281/2020 4. desember 2020

AUGLÝSING
frá ríkisskattstjóra um bústofn til eignar í skattframtali 2021.

Eignamat í árslok.

Samkvæmt 2. tl. 73. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, skal telja búpening til eignar með verði er ríkisskattstjóri ákveður til eins árs í senn. Samkvæmt 1. gr. reglugerðar nr. 213/2001, um skatta­lega meðferð á bústofnsbreytingu og kaupverði lífdýra í landbúnaði, skal færa bústofn allan í árs­byrjun á bústofnsskýrslu með því verði sem ríkisskattstjóri ákveður sbr. framangreint.

Ríkisskattstjóri hefur ákveðið eftirfarandi mat á búpeningi í árslok 2020, álagningarárið 2021, vegna bústofnsskýrslu fyrir það álagningarár:

  kr.    
Mjólkurkýr 130.000
Holdakýr og naut 140.000
Kvígur, 1 1/2 árs og eldri 130.000
Geldneyti 75.000
Kálfar, yngri en 1/2 árs 13.000
Ær og sauðir 6.000
Hrútar 16.000
Gemlingar 9.000
Geitur 9.000
Hross á 14. vetri og eldri 18.000
Hross á 5. – 13. vetri 36.000
Fulltamin reiðhross á 5. – 13. vetri 170.000
Önnur nýtanleg reiðhross 90.000
Verðlaunahross á 5. – 13. vetri 250.000
Kynbótahestar á 5. – 13. vetri 350.000
Verðlaunaðir kynbótahestar á 5. – 13. vetri 450.000
Tryppi á 2. – 4. vetri 12.300
Folöld 8.700
Hænsni, eldri en 6 mánaða 940
Varphænsni 6 mánaða og yngri 635
Kjúklingar 250
Endur 870
Gæsir 1.740
Kalkúnar 2.610
Gyltur 39.000
Geltir 58.000
Grísir 11.000
Kanínur 5.000
Minkar: Karldýr 4.500
  Kvendýr 3.000
Önnur ótilgreind dýr nýtt í rekstri 0

 

Reykjavík, 4. desember 2020.

 

Snorri Olsen ríkisskattstjóri.


B deild - Útgáfud.: 18. desember 2020