Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1247/2023

Nr. 1247/2023 14. nóvember 2023

REGLUGERÐ
um (1.) breytingu á reglugerð nr. 463/2021 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1882 um beitingu tiltekinna reglna um forvarnir og varnir gegn sjúkdómum fyrir flokka skráðra dýrasjúkdóma (dýraheilbrigði).

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinnar ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar öðlast eftir­talin ESB-gerð gildi hér á landi:

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/925 frá 14. júní 2022 um breyt­ingu á viðaukanum við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2018/1882 að því er varðar skráða sjúk­dóma í lagardýrum og skrána yfir dýrategundir og hópa dýrategunda sem skapa töluverða áhættu á útbreiðslu þessara skráðu sjúkdóma. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 30/2023, frá 17. mars 2023. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 77, frá 26. október 2023, bls. 3.

 

2. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum reglugerðarinnar sé framfylgt í samræmi við lög nr. 54/1990 um innflutning dýra, lög nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, lög nr. 66/1998 um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr, lög nr. 60/2006 um varnir gegn fisk­sjúkdómum og lög nr. 71/2008 um fiskeldi.

 

3. gr.

Um þvingunarúrræði og viðurlög vísast til laga nr. 54/1990 um innflutning dýra, laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim og laga nr. 66/1998 um dýralækna og heilbrigðis­þjónustu við dýr.

 

4. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 54/1990 um innflutning dýra, lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, lögum nr. 60/2006 um varnir gegn fisksjúkdómum og lögum nr. 71/2008 um fiskeldi.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Matvælaráðuneytinu, 14. nóvember 2023.

 

Svandís Svavarsdóttir.

Emilía Madeleine Heenen.


B deild - Útgáfud.: 23. nóvember 2023