Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1012/2017

Nr. 1012/2017 9. nóvember 2017

REGLUGERÐ
um breyting á reglugerð um eftirlit með þjónustu og hlutum sem geta haft hernaðarlega þýðingu nr. 361/2016, ásamt síðari breytingum.

1. gr.

Innleiðing gerða.

Eftirfarandi breytingar eru gerðar á reglugerð um eftirlit með þjónustu og hlutum sem geta haft hernaðarlega þýðingu nr. 361/2016, ásamt síðari breytingum:

  1. Eftirfarandi gerð bætist við 1. mgr. 2. gr.:
    1.2 Tilskipun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/433 frá 7. mars 2017 um breytingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/43/EB að því er varðar skrána yfir varnar­tengdar vörur (EES-viðbætir nr. 67, frá 19. október 2017, bls. 44-77), sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 136/2017, 7. júlí 2017.
  2. 2. tölul. 2. mgr. 2. gr. fellur niður (Tilskipun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/970).

2. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4., 5., og 14. gr. laga um eftirlit með þjónustu og hlutum sem geta haft hernaðarlega þýðingu, nr. 58/2010, öðlast þegar gildi.

Utanríkisráðuneytinu, 9. nóvember 2017.

Guðlaugur Þór Þórðarson.

Sturla Sigurjónsson.


B deild - Útgáfud.: 24. nóvember 2017