1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 7. gr. reglugerðarinnar:
- Í stað „627.792 kr.“ í 1. málsl. 2. mgr. kemur: 726.192 kr.
- 3. málsliður 2. mgr. verður svohljóðandi: Um útreikning heimilisuppbótar vegna búsetu fer samkvæmt 1. mgr. 17. gr. laga um almannatryggingar og um frítekjumörk vegna tekna fer samkvæmt 1. mgr. 23. gr. sömu laga.
- Í stað „478.212 kr.“ í 3. mgr. kemur: 582.768 kr.
2. gr.
Í stað „2.700.840 kr.“ í 12. gr. reglugerðarinnar kemur: 2.827.779 kr.
3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 14. gr. reglugerðarinnar:
- Í stað „280.000 kr.“ í 1. málsl. 2. mgr. kemur: 300.000 kr.
- Í stað „227.833 kr.“ í 2. málsl. 2. mgr. kemur: 238.594 kr.
4. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 5. mgr. 9. gr., sbr. 14. gr., laga nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, sbr. einnig 70. gr. laga nr. 100/2007, um almannatryggingar, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2018.
Velferðarráðuneytinu, 29. desember 2017.
Ásmundur Daðason félags- og jafnréttismálaráðherra.
Hanna Sigr. Gunnsteinsdóttir.
|