Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 125/2023

Nr. 125/2023 25. janúar 2023

REGLUR
um breytingu á reglum nr. 244/2014 um gjaldskrá Háskóla Íslands vegna þjónustu við nemendur o.fl., og innheimtu og ráðstöfun skrásetningargjalds.

1. gr.

Í stað setningarinnar „Inntökupróf í læknadeild kr. 20.000“ í 2. mgr. 14. gr. reglnanna koma orðin: Inntökupróf í læknadeild og tannlæknadeild kr. 35.000.

 

2. gr.

Reglur þessar, sem samþykktar hafa verið í háskólaráði Háskóla Íslands, eru settar í samræmi við heimild í 24. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og öðlast þegar gildi.

 

Háskóla Íslands, 25. janúar 2023.

 

Jón Atli Benediktsson.

Þórður Kristinsson.


B deild - Útgáfud.: 10. febrúar 2023