Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 12/2024

Nr. 12/2024 3. janúar 2024

GJALDSKRÁ
fyrir söfnun og eyðingu dýraleifa í Dalabyggð.

1. gr.

Sveitarstjórn Dalabyggðar leggur á gjald til að mæta kostnaði við söfnun og eyðingu dýraleifa í samræmi við lög um meðhöndlun úrgangs nr. 55/2003, lög um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998 og samþykkt nr. 845/2021 um meðhöndlun úrgangs í Dalabyggð.

 

2. gr.

Förgunargjaldið byggir á fjölda búfjár á lögbýlum í sveitarfélaginu miðað við búfjárskýrslur Matvælastofnunar og verður innheimt með fasteignagjöldum. Miðað er við að dýrahræ séu sótt til bænda og annarra búfjáreigenda með skráðan bústofn og komið í viðeigandi meðhöndlun. Farin verður ein ferð í viku að jafnaði.

 

3. gr.

Gjald vegna hirðingar og eyðingar á dýrahræjum er innheimt af bújörðum, hesthúsum og öðrum aðilum sem eru með skráðan bústofn og er árlega sem hér segir (miðað við upplýsingar frá matvæla­ráðuneyti um hausttölur ár hvert). Eitt hross reiknast sem þrjár ær og einn nautgripur sem fimm ær.

a. Sauðfé < 20 kr. 20.890
b. Sauðfé 21 – 40 kr. 59.460
c. Sauðfé 41 – 80 kr. 78.765
d. Sauðfé > 80 kr. 94.210

 

4. gr.

Gjaldskrá þessi sem var samþykkt af sveitarstjórn Dalabyggðar 7. desember 2023 staðfestist hér með samkvæmt 59. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og öðlast þegar gildi. Um leið fellur úr gildi gjaldskrá fyrir söfnun og eyðingu dýraleifa í Dalabyggð nr. 101/2023.

 

Búðardal, 3. janúar 2024.

 

Björn Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri.


B deild - Útgáfud.: 17. janúar 2024