1. gr. 6. gr. verður svohljóðandi: Stórgreiðslukerfið skal starfrækt frá kl. 9.00 til kl. 16.30 á bankadögum, en frá kl. 16.15 skulu þátttakendur loka fyrir greiðslufyrirmæli frá viðskiptamönnum sínum sem eru yfir stórgreiðslumörkum. Uppgjör í jöfnunarkerfi og verðbréfauppgjörskerfi skal fara fram a.m.k. einu sinni á bankadegi og eigi síðar en við lokun stórgreiðslukerfisins. Seðlabankinn getur heimilað fleiri en eitt uppgjör í jöfnunarkerfi og verðbréfauppgjörskerfi innan hvers bankadags. Ákvarðanir um fjölda uppgjöra og tímasetningu þeirra eru birtar á vefsíðu Seðlabankans. Seðlabankinn getur lokað stórgreiðslukerfinu við sérstakar aðstæður. Eftirfarandi á við um notkun stórgreiðslukerfisins utan almenns starfrækslutíma þess: Frá kl. 16.30 til kl. 16.45 á bankadögum geta þátttakendur leitað til Seðlabankans til þess að ganga frá innbyrðis greiðsluuppgjöri og eyða skuldastöðu í stórgreiðslukerfinu. Við sérstakar aðstæður getur Seðlabankinn opnað stórgreiðslukerfið utan almenns starfrækslutíma þess. Seðlabankinn ákveður starfrækslutíma stórgreiðslukerfisins á gamlársdag og öðrum dögum þegar bankakerfið er starfrækt hluta úr degi.
2. gr. Reglur þessar eru settar samkvæmt heimild í 38. gr., sbr. 4. gr., laga nr. 36/2001, um Seðlabanka Íslands og öðlast gildi 25. maí 2010. Reykjavík, 30. mars 2010. | Seðlabanki Íslands, | | Már Guðmundsson seðlabankastjóri. | Tryggvi Pálsson framkvæmdastjóri. |
|