Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 232/2023

Nr. 232/2023 7. mars 2023

REGLUGERÐ
um gildistöku framkvæmdarreglna framkvæmdastjórnarinnar um skráningar á landfræðilegum merkingum fyrir brennda drykki skv. 2. mgr. 30. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/787.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í XXVII. kafla II. viðauka samn­ingsins (brenndir drykkir), gilda hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Innflutningur og markaðssetning á brenndum drykkjum er heimil eftir því sem tilgreint er í XXVII. kafla II. viðauka samningsins.

 

2. gr.

Á grundvelli eftirtalinna ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar öðlast eftirtaldar ESB-gerðir gildi hér á landi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1350 frá 12. ágúst 2019 um skráningu landfræðilegrar merkingar fyrir brenndan drykk skv. 2. mgr. 30. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/787 („Absinthe de Pontarlier“). Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 71/2022, frá 18. mars 2022. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 26, frá 21. apríl 2022, bls. 238.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1682 frá 2. október 2019 um skráningu landfræðilegrar merkingar fyrir brenndan drykk skv. 2. mgr. 30. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/787 („Ямболска гроздова ракия/Гроздова ракия от Ямбол/Yambolska grozdova rakya/Grozdova rakya ot Yambol“). Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 71/2022, frá 18. mars 2022. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 26, frá 21. apríl 2022, bls. 240.
  3. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/154 frá 23. janúar 2020 um skráningu landfræðilegrar merkingar fyrir brenndan drykk skv. 2. mgr. 30. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/787 (Norsk Vodka/Norwegian Vodka). Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 71/2022, frá 18. mars 2022. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 26, frá 21. apríl 2022, bls. 242.
  4. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/156 frá 23. janúar 2020 um skráningu landfræðilegrar merkingar fyrir brenndan drykk skv. 2. mgr. 30. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/787 („Norsk Akevitt/Norsk Aquavit/Norsk Akvavit/Norwegian Aquavit“). Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 71/2022, frá 18. mars 2022. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 26, frá 21. apríl 2022, bls. 244.
  5. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/179 frá 3. febrúar 2020 um samþykki fyrir breytingum á nákvæmri skilgreiningu fyrir brenndan drykk en heiti hans er skráð sem landfræðileg merking (Berliner Kümmel). Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 71/2022, frá 18. mars 2022. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 26, frá 21. apríl 2022, bls. 246.
  6. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/623 frá 30. apríl 2020 um samþykki fyrir breytingum á nákvæmri skilgreiningu fyrir brenndan drykk en heiti hans er skráð sem landfræðileg merking (Ratafia de Champagne). Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 71/2022, frá 18. mars 2022. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 26, frá 21. apríl 2022, bls. 247.
  7. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1286 frá 9. september 2020 um samþykki fyrir breytingum á nákvæmri skilgreiningu fyrir brenndan drykk en heiti hans er skráð sem landfræðileg merking (Scotch Whisky). Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 71/2022, frá 18. mars 2022. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 26, frá 21. apríl 2022, bls. 249.
  8. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1287 frá 9. september 2020 um samþykki fyrir breytingum á nákvæmri skilgreiningu fyrir brenndan drykk en heiti hans er skráð sem landfræðileg merking (Hierbas de Mallorca). Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 71/2022, frá 18. mars 2022. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 26, frá 21. apríl 2022, bls. 251.
  9. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/2079 frá 8. desember 2020 um samþykki fyrir breytingum á nákvæmri skilgreiningu fyrir brenndan drykk en heiti hans er skráð sem landfræðileg merking (Münchener Kümmel). Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 71/2022, frá 18. mars 2022. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 26, frá 21. apríl 2022, bls. 253.
  10. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/518 frá 18. mars 2021 um skráningu landfræðilegrar merkingar fyrir brenndan drykk skv. 2. mgr. 30. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/787 („Vasi vadkörte pálinka“). Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 133/2022 frá 29. apríl 2022. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 34, frá 25. maí 2022, bls. 626.
  11. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/717 frá 26. apríl 2021 um skráningu landfræðilegrar merkingar fyrir brenndan drykk skv. 2. mgr. 30. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/787 (Nagykunsági szilvapálinka). Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 241/2022 frá 23. september 2022. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambands­ins nr. 72, frá 3. nóvember 2022, bls. 247.
  12. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1265 frá 26. júlí 2021 um skráningu landfræðilegrar merkingar fyrir brenndan drykk skv. 2. mgr. 30. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/787 („Bayerischer Bärwurz“). Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 241/2022 frá 23. september 2022. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 72, frá 3. nóvember 2022, bls. 285.
  13. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1291 frá 28. júlí 2021 um skráningu landfræðilegrar merkingar fyrir brenndan drykk skv. 2. mgr. 30. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/787 („Demerara Rum“). Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 241/2022 frá 23. september 2022. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 72, frá 3. nóvember 2022, bls. 283.
  14. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1343 frá 10. ágúst 2021 um samþykki fyrir breytingum á nákvæmri skilgreiningu fyrir brenndan drykk en heiti hans er skráð sem landfræðileg merking [Újfehértói meggypálinka]. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 241/2022 frá 23. september 2022. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 72, frá 3. nóvember 2022, bls. 287.
  15. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1419 frá 24. ágúst 2021 um skráningu landfræðilegrar merkingar fyrir brenndan drykk skv. 2. mgr. 30. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/787 („Nagykunsági birspálinka“). Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 241/2022 frá 23. september 2022. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambands­ins nr. 72, frá 3. nóvember 2022, bls. 289.
  16. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1687 frá 14. september 2021 um skráningu landfræðilegrar merkingar fyrir brenndan drykk skv. 2. mgr. 30. gr. reglu­gerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/787 („Madarasi birspálinka“). Reglu­gerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 241/2022 frá 23. september 2022. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópu­­sambands­ins nr. 72, frá 3. nóvember 2022, bls. 291.
  17. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/2262 frá 13. desember 2021 um skráningu landfræðilegrar merkingar fyrir brenndan drykk skv. 2. mgr. 30. gr. reglu­gerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/787 („Bayerischer Blutwurz“). Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 241/2022 frá 23. september 2022. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópu­sambands­ins nr. 72, frá 3. nóvember 2022, bls. 293.

 

3. gr.

Tollyfirvöld hafa eftirlit með því að ákvæðum reglugerðar þessarar sé framfylgt í samræmi við 132. gr. tollalaga nr. 88/2005.

Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar hafa eftir­lit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995, um matvæli, sbr. 29. gr. laga nr. 130/2014, um vernd afurðarheita sem vísa til uppruna, land­svæðis eða hefðbundinnar sérstöðu.

 

4. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 40., sbr. 27. gr. laga um vernd afurðarheita sem vísa til upp­runa, landsvæðis eða hefðbundinnar sérstöðu nr. 130/2014, með síðari breytingum, og 31. gr. a laga um matvæli nr. 93/1995, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.

 

Matvælaráðuneytinu, 7. mars 2023.

 

Svandís Svavarsdóttir.

Margrét Björk Sigurðardóttir.


B deild - Útgáfud.: 10. mars 2023