Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 395/2018

Nr. 395/2018 6. apríl 2018

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 1106/2015, um vöruval, innkaup og dreifingu ÁTVR á áfengi, með síðari breytingum.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 22. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað orðsins „sex“ kemur: tíu.
  2. Við bætast fjórir stafliðir, sem verða a., e., f. og h., svohljóðandi, og breytist röð annarra staf­liða samkvæmt því:
    1. Flokkur K0. Vöruúrval K0 vínbúða skal samanstanda af að minnsta kosti 50 vörum.
    2. Flokkur K4. Vöruúrval K4 vínbúða skal samanstanda af að minnsta kosti 400 vörum.
    3. Flokkur K5. Vöruúrval K5 vínbúða skal samanstanda af að minnsta kosti 500 vörum.
    4. Flokkur K7. Vöruúrval K7 vínbúða skal samanstanda af að minnsta kosti 700 vörum.

2. gr.

46. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Birgir skal taka til baka gallaða vöru. Um skil á gallaðri vöru fer eftir 50. gr. reglugerðar þessarar.

3. gr.

Fyrirsögn VII. kafla reglugerðarinnar orðast svo: Afhending, greiðslukjör og skil á vöru­birgðum.

4. gr.

49. gr. reglugerðarinnar orðast svo, ásamt fyrirsögn:

Greiðslukjör og uppgjör.

ÁTVR greiðir birgi fyrir mótteknar vörur á síðasta degi mánaðar eða á næsta vinnudegi ef greiðslu­dag ber upp á frídag.

Við sérstakar aðstæður er ÁTVR heimilt, þrátt fyrir ákvæði 1. mgr., að greiða birgi fyrir vöru eftir sölu hennar úr verslun ÁTVR. Skal ÁTVR þá greiða birgi eigi síðar en á tíunda degi eftir lok sölu­mánaðar.

Þegar vara í kjarna- eða sérflokki fellur úr vöruvali skal ÁTVR selja upp mótteknar vörubirgðir. Þegar vara í reynslu- eða tímabilsflokki fellur úr vöruvali skal birgir taka til baka óseldar vörubirgðir. ÁTVR er þó heimilt að víkja frá framangreindum ákvæðum þegar sérstaklega stendur á. Um skil á vörubirgðum fer eftir 50. gr. reglugerðar þessarar.

5. gr.

Á eftir 49. gr. reglugerðarinnar kemur ný grein ásamt fyrirsögn, svohljóðandi, og breytist númera­röð annarra greina samkvæmt því:

Skil á vörubirgðum.

Birgir skal sækja vörubirgðir eigi síðar en 30 dögum eftir að honum berst áskorun þess efnis frá ÁTVR. Við móttöku birgisins á vörubirgðunum skal hann, þegar við á, afhenda ÁTVR kreditreikning og/eða endurgreiða ÁTVR vörubirgðirnar. Bregðist birgir ekki við í samræmi við áskorun ÁTVR er heimilt að eyða vörubirgðum á kostnað birgis og krefja hann um endurgreiðslu þeirra.

6. gr.

3. mgr. 51. gr. reglugerðarinnar fellur brott.

7. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 11. gr. laga nr. 86/2011, um verslun með áfengi og tóbak, öðlast þegar gildi.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 6. apríl 2018.

F. h. r.

Maríanna Jónasdóttir.

Steinar Örn Steinarsson.


B deild - Útgáfud.: 23. apríl 2018