Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1439/2021

Nr. 1439/2021 4. nóvember 2021

GJALDSKRÁ
fyrir söfnun, förgun, móttöku og flokkun sorps í Ísafjarðarbæ.

1. gr.

Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar er heimilt að leggja á sérstakt sorpgjald vegna söfnunar, förgunar, mót­töku og flokkunar á sorpi í sveitarfélaginu samkvæmt 8. gr. samþykktar um sorphirðu í Ísafjarð­ar­bæ nr. 1221/2011.

 

2. gr.

Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar hefur ákveðið að sorphirðugjald verði 19.900 kr. og sorpförgunar­gjald 37.900 kr. samkvæmt samþykkt um sorphirðu. Auk þess hefur bæjarstjórn ákveðið að sorp­förg­unar­gjald á sumarbústaði og íbúðarhúsnæði með ákvæði um takmörkun á íveru vegna snjóflóða­­hættu verði 18.950 kr.

Ofangreind gjöld skulu innheimt samhliða fasteignagjöldum.

 

3. gr.

Móttöku- og urðunargjald rekstraraðila á endurvinnslustöð:

a) Ekki er tekið neitt gjald fyrir móttöku á flokkuðum úrgangi sem ber úrvinnslugjald, þar má nefna: pappaumbúðir, plastumbúðir, hjólbarða, heyrúlluplast, ýmis spilliefni og úrelt öku­tæki.
b) Íbúar Ísafjarðarbæjar þurfa ekki að greiða móttökugjald fyrir garðaúrgang.
c) Gjald fyrir móttöku í endurvinnslustöð í Ísafjarðarbæ er:
  Blandaður/grófur úrgangur 37 kr./kg
  Timbur 46 kr./kg

 

4. gr.

Gjaldskrá þessi sem er samþykkt af bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar, staðfestist samkvæmt heimild 8. gr. samþykktar um sorphirðu í Ísafjarðarbæ, skv. lögum nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs og lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, með síðari breytingum, til þess að öðlast gildi þann 1. janúar 2022. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá sama efnis nr. 1388/2020.

 

Samþykkt í bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar, 4. nóvember 2021.

 

Birgir Gunnarsson bæjarstjóri.


B deild - Útgáfud.: 15. desember 2021