Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1254/2019

Nr. 1254/2019 17. desember 2019

AUGLÝSING
um veiðigjald fyrir árið 2020.

Veiðigjald á landaðan afla frá og með 1. janúar til 31. desember 2020 nemur í krónum á hvert kílógramm óslægðs afla þeim fjárhæðum sem hér segir:

  Grálúða 32,46 
  Karfi/gullkarfi  3,83
  Gulllax  3,42
  Hlýri  6,18
  Humar 18,91 
  Keila  4,69
  Kolmunni  0,06
  Langa  7,48
  Langlúra  9,88
  Loðna  0,32
  Makríll  1,69
  Rækja  0,32
  Síld  1,57
  Skarkoli 16,56 
  Skötuselur 13,38 
  Sólkoli/Þykkvalúra 34,72 
  Steinbítur  9,73
  Ufsi  3,22
  Ýsa 14,86 
  Þorskur 10,62 

Veiðigjald fyrir hvern hval er sem hér segir: i) langreyður 54.895 kr., ii) hrefna 8.783 kr. Veiði­gjald á sjávargróður er sem hér segir: 549 kr. á hvert landað tonn klóþangs, hrossaþara og stórþara (blautvigt).

Auglýsing þessi, sem sett er að fenginni tillögu embættis ríkisskattstjóra skv. 4. gr. laga um veiði­gjald nr. 145/2018, sbr. einnig 8. gr. sömu laga, öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 17. desember 2019.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Arnór Snæbjörnsson.


B deild - Útgáfud.: 30. desember 2019