Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 965/2021

Nr. 965/2021 30. ágúst 2021

AUGLÝSING
um breytingu á gjaldskrá Veitustofnunar Seltjarnarness, heitt vatn, nr. 901/2012.

1. gr.

Samkvæmt reglugerð fyrir Veitustofnun Seltjarnarness nr. 237/2011 og orkulögum nr. 58/1967, með síðari breytingum hefur ráðuneytið staðfest eftirfarandi breytingu á gjaldskrá Veitu­stofn­unar Seltjarnarness, heitt vatn, nr. 901/2012, er tekur gildi við birtingu í Stjórnartíðindum.

 

2. gr.

3. gr. gjaldskrárinnar verður svohljóðandi:

Gjöld fyrir afnot af heita vatninu eru sem hér segir:

 

Tegund Veitusvæði Kr. 2% skattur  Með 11% vsk Grunnur
Einingaverð Sala í þéttbýli, húshitun 106,15 2,12 120,18 kr./m³

 

Tegund Veitusvæði Kr. 2% skattur Með 11% vsk Grunnur
Einingaverð Sala í þéttbýli, til snjóbræðslu 106,15 2,12 120,18 kr./m³
Einingaverð Sala í þéttbýli, til iðnaðar 106,15 2,12 120,18 kr./m³

 

Tegund Stærð mælis Kr. 2% skattur Með 11% vsk Grunnur
Fast verð A: 15 mm og stærri 26,86 0,54 30,41 kr./dag

 

Fast gjald er hluti af almennum taxta og í öllum öðrum samningum þar sem selt er samkvæmt mæli.

Fast verð er fyrir föstum kostnaði og er óháð stærð mælis. Gjaldinu er dreift jafnt niður á tímabil reikninga.

 

3. gr.

5. gr. gjaldskrárinnar verður svohljóðandi:

Fast gjald á heimæð fyrir hús allt að 300 m³ að stærð kr. 269.871
Umframgjald fyrir hús að stærð 300-1.000 m³ kr.       322 pr. m³
Umframgjald fyrir hús að stærð yfir 1.000 m³ kr.       215 pr. m³
1 rennslismælir á grind kr.   85.373

 

4. gr.

9. gr. gjaldskrárinnar verður svohljóðandi:

Veitustofnun Seltjarnarness hefur rétt til að loka aðrennsli heita vatnsins að húsi eða íbúð not­anda, sem vanrækir að greiða hitaveitugjöld. Fyrirætlun um lokun ber að tilkynna með 3ja daga fyrir­vara.

Allan kostnað við lokun og opnun á ný greiðir sá, sem í vanskilum er, kr. 6.000 í hvert skipti.

Önnur þjónustugjöld Veitustofnunar Seltjarnarness eru eftirfarandi:

Seðilgjald kr.       198
Tilkynningar og greiðslugjald kr.         65
Auka álestur kr.    2.000
Innheimtuviðvörun kr.       800
Gjald fyrir opnun utan dagvinnutíma kr.  15.000

 

5. gr.

Aðrir liðir gjaldskrárinnar eru óbreyttir.

 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 30. ágúst 2021.

F. h. ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra,

Benedikt Árnason.

Hreinn Hrafnkelsson.


B deild - Útgáfud.: 31. ágúst 2021