1. gr.
Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar skal ákvarða og innheimta sorpgjald fyrir söfnun og meðhöndlun úrgangs, samkvæmt 1. mgr. 23. gr. laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs. Þá er Akraneskaupstað heimilt að innheimta gjald fyrir alla meðhöndlun úrgangs, uppsetningu og rekstur nauðsynlegra innviða í samræmi við 2. mgr. 23. gr. laganna.
Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar er heimilt að leggja á sérstakt sorpgjald með vísan til samþykktar um meðhöndlun úrgangs á Akranesi nr. 1231/2005.
2. gr.
Sorpgjald er lagt á hverja íbúð í Akraneskaupstað og er það innheimt með fasteignagjöldum eða á annan hátt eftir því sem við verður komið og þá með sömu gjalddögum og fasteignagjöld, sem að jafnaði eru innheimt á tímabilinu janúar til og með október ár hvert.
Gjaldið nýtur lögveðsréttar í viðkomandi fasteign tvö ár eftir gjalddaga.
3. gr.
Gjöldin greiðast árlega sem hér greinir:
3.1 |
Eigandi íbúðar greiðir kr. 42.814 á íbúð í sorpgjald miðað við tvær 240 lítra sorptunnur (eina fyrir almennan úrgang og aðra fyrir flokkaðan úrgang/sorp). |
|
Húsfélög geta fengið 240 lítra eða 660 lítra sorpílát, með samtals sömu lítratölu. |
4. gr.
Gjaldskrá þessi, sem samin er og samþykkt af bæjarstjórn Akraneskaupstaðar 12. desember 2023, staðfestist hér með skv. 59. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og skv. 23. gr. laga nr. 55/2023 um meðhöndlun úrgangs, og öðlast þegar gildi.
Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá nr. 1372/2020 fyrir hirðu og eyðingu sorps í Akraneskaupstað.
Akranesi, 14. desember 2023.
Haraldur Benediktsson bæjarstjóri.
|