Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1172/2016

Nr. 1172/2016 21. desember 2016

GJALDSKRÁ
fyrir hirðu og eyðingu sorps í Akraneskaupstað.

1. gr.

Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar er heimilt að leggja á sérstakt sorphreinsunar- og sorpeyð­ingar­gjald með vísan til samþykktar um meðhöndlun úrgangs á Akranesi nr. 1231/2005.

2. gr.

Gjöldin greiðast árlega sem hér greinir:

2.1 Fyrir íbúðir, íbúðarhúsnæði greiðast kr. 18.786 á íbúð í sorphreinsunargjald miðað við tvær sorptunnur. Húseigendum eru í upphafi afhentar tvær 240 l sorptunnur (ein fyrir almennt sorp og önnur fyrir flokkað sorp).
2.2 Fyrir íbúðir, íbúðarhúsnæði greiðast kr. 16.021 á íbúð í sorpeyðingargjald miðað við tvær sorptunnur (ein fyrir almennt sorp og önnur fyrir flokkað sorp).
2.3 Húsfélög geta fengið 660 l eða 1.100 l sorpílát í stað 240 l sorptunna. Sorptunnur sem skilað er inn til að fá stærri sorpílát þurfa að vera a.m.k. með samtals sömu lítratölu og þau sorpílát sem koma í staðinn. Endurnýjun sorpíláta er á kostnað húseigenda.

Gjöldin innheimtast með fasteignagjöldum sem að jafnaði eru innheimt á tímabilinu janúar til og með október ár hvert.

3. gr.

Gjaldskrá þessi, sem er samin og samþykkt af bæjarstjórn Akraneskaupstaðar þann 13. desember 2016, staðfestist hér með samkvæmt 25. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, með síðari breytingum. Breyting þessi öðlast þegar gildi. Um leið fellur úr gildi gjaldskrá nr. 561/2016 fyrir hirðu og eyðingu sorps í Akraneskaupstað.

Akranesi, 21. desember 2016.

Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri.


B deild - Útgáfud.: 27. desember 2016