1. gr.
Með vísan til 3. mgr. 20. gr. reglugerðar nr. 585/2010, um stuðning við nemendur með sérþarfir í grunnskóla, sbr. breytingareglugerð nr. 148/2015, hefur mennta- og menningarmálaráðherra hinn 17. október 2016 staðfest reglur um innritun og útskrift nemenda úr einhverfudeildum í grunnskólum Reykjavíkurborgar. Reglurnar eru birtar sem fylgiskjal með auglýsingu þessari. Reglurnar voru samþykktar á fundi borgarstjórnar Reykjavíkur hinn 17. maí 2016.
2. gr.
Auglýsing þessi öðlast þegar gildi. Frá sama tíma falla úr gildi reglur um innritun í sérskóla og sérhæfðar sérdeildir, samþykktar í menntaráði þann 3. mars 2005.
Mennta- og menningarmálaráðuneytinu, 17. október 2016.
Illugi Gunnarsson.
Karitas H. Gunnarsdóttir.
Fylgiskjal. (sjá PDF-skjal)
|