Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1550/2022

Nr. 1550/2022 8. desember 2022

AUGLÝSING
um flokkun vöru og þjónustu vegna vörumerkja.

1. gr.

Gildissvið.

Í samræmi við 16. gr. laga nr. 45/1997 um vörumerki, með síðari breytingum og ákvæði Nice-samningsins frá 15. júní 1957 um alþjóðlega flokkun vöru og þjónustu vegna skráningar vöru­merkja með síðari breytingum, gildir eftirfarandi flokkaskrá fyrir vörur og þjónustu vegna skráningar vörumerkja. Flokkaskráin er birt sem fylgiskjal með auglýsingu þessari.

Flokkaskráin er í samræmi við 12. útgáfu alþjóðlegu skrárinnar um flokkun vöru og þjónustu við skráningu vörumerkja samkvæmt Nice-samningnum sem tók gildi 1. janúar 2017 og þær breyt­ingar sem hafa átt sér stað frá þeim tíma. Til fyllingar áðurnefndri flokkaskrá er jafnframt notast við sameiginlegan gagnagrunn vöru- og þjónustulýsinga frá Evrópsku hugverkastofunni, EUIPO, sem byggir á Nice-samningnum.

Flokkaskráin er uppfærð með rafrænum hætti um hver áramót.

 

2. gr.

Breytingar 1. janúar 2023.

Eftirfarandi breytingar eru gerðar á íslenskri þýðingu á yfirskriftum flokkaskrárinnar frá og með 1. janúar 2023.

  1. Í stað orðsins „fasteignaviðskipti“ í flokki 36 komi: fasteignaþjónusta.
  2. Yfirskrift flokks 45 verður: Lögfræðiþjónusta; persónuleg öryggisþjónusta til verndar áþreifanlegum eignum og einstaklingum; stefnumótaþjónusta; samfélagsmiðlaþjónusta á internetinu; útfararþjónusta; barnagæsla.

 

3. gr.

Gildistaka og brottfall.

Auglýsing þessi gildir frá og með 1. janúar 2023. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing um flokkun vöru og þjónustu vegna vörumerkja nr. 1419/2021.

 

Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu, 8. desember 2022.

 

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir.

Ásdís Halla Bragadóttir.

 

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)


B deild - Útgáfud.: 29. desember 2022