Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 908/2023

Nr. 908/2023 21. ágúst 2023

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Úkraínu, nr. 281/2014, ásamt síðari breytingum.

1. gr.

Almenn ákvæði.

2. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar orðast svo: Í þeim gerðum sem vitnað er til í 2. gr., og öðrum ákvæðum reglugerðar þessarar, kemur fram um hvaða ályktun er að ræða, hverjar þær þving­unar­aðgerðir sem koma eiga til framkvæmda eru og gegn hverjum þær beinast, sbr. 2. mgr. 6. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna nr. 68/2023.

 

2. gr.

Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar, í réttri númeraröð:

  3.71 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/1218 frá 23. júní 2023 um breytingu á ákvörðun 2014/145/SSUÖ um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 3.71.
  4.80 Reglugerð ráðsins (ESB) 2023/1215 frá 23. júní 2023 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 269/2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landa­mærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 4.80.
  7.32 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/1217 frá 23. júní 2023 um breytingu á ákvörðun 2014/512/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðug­leika í Úkraínu, sbr. fylgiskjal 7.32.
  8.24 Reglugerð ráðsins (ESB) 2023/1214 frá 23. júní 2023 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 833/2014 um þvingunaraðgerðir sem grafa undan stöðugleika í Úkraínu, sbr. fylgiskjal 8.24.

2. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar orðast svo: Listar yfir aðila, hluti, tækni eða annað viðfang þving­unaraðgerða, sem vísað er til í framangreindum gerðum, eru birtir á vef Stjórnartíðinda Evrópu­sambandsins. Síðari breytingar og uppfærslur listanna öðlast sjálfkrafa gildi við birtingu á þeim vef, sbr. 3. mgr. 6. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 68/2023.

 

3. gr.

Viðurlög.

6. gr. reglugerðarinnar orðast svo: Hver sá sem brýtur gegn þvingunaraðgerðum skv. lögum nr. 68/2023 um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna skal sæta viðurlögum skv. 37. gr. laganna, nema þyngri viðurlög liggi við samkvæmt öðrum lögum.

 

4. gr.

Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 6. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þving­unar­aðgerða og frystingu fjármuna nr. 68/2023, öðlast þegar gildi.

 

Utanríkisráðuneytinu, 21. ágúst 2023.

 

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.

Martin Eyjólfsson.

 

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)


B deild - Útgáfud.: 5. september 2023