1. gr. 1. ml. í d-lið 2. gr. verður svohljóðandi: d) Einkunnaskil. Umsjónarkennari skilar lokaeinkunn til skrifstofustjóra síns fræðasviðs eigi síðar en á tólfta virka degi eftir prófdag. 2. gr. 4. ml. í c-lið 5. gr. verður svohljóðandi: Nemandi sem kemur ekki til prófs og hefur ekki boðað forföll telst hafa þreytt prófið og fær einkunnina F. 3. gr. Reglur þessar sem samþykktar voru af háskólaráði 25. nóvember 2011, eru settar á grundvelli laga nr. 85/2008 með breytingum nr. 50/2010 og öðlast þegar gildi. Háskólanum á Akureyri, 30. nóvember 2011. Stefán B. Sigurðsson rektor. Sigurður Kristinsson, varaforseti háskólaráðs. |