Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1091/2018

Nr. 1091/2018 19. nóvember 2018

REGLUR
um tæknilega framkvæmdarstaðla er varða málsmeðferðarreglur vegna stofnunar félags með sérstakan tilgang, fyrir samstarf og upplýsingaskipti milli eftirlitsyfirvalda og form og sniðmát fyrir gögn.

1. gr.

Gildissvið.

Reglur þessar gilda um starfsemi innlendra vátryggingafélaga og starfsemi erlendra vátrygg­inga­félaga hér á landi, sbr. 2. og 3. gr. laga nr. 100/2016 um vátryggingastarfsemi.

2. gr.

Starfsleyfi félags með sérstakan tilgang.

Samkvæmt 1. mgr. 19. gr. laga nr. 100/2016 um vátryggingastarfsemi getur félag með sérstakan tilgang starfað hér á landi að fengnu starfsleyfi Fjármálaeftirlitsins enda uppfylli slíkt félag skilyrði í reglugerð sem ráðherra setur. Reglur þessar eru settar til að innleiða tæknilega fram­kvæmdar­staðla Evrópsku vátrygginga- og lífeyrissjóðaeftirlitsstofnunarinnar um meðferð máls þegar starfsleyfi er veitt fyrir félag með sérstakan tilgang, um form og sniðmát fyrir gögn sem slík félög eiga að skila og um samstarf og upplýsingaskipti milli eftirlitsyfirvalda.

3. gr.

Innleiðing reglugerða.

Með reglum þessum öðlast gildi hér á landi framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/462 frá 19. mars 2015 um tæknilega framkvæmdarstaðla að því er varðar málsmeðferðarreglur við samþykki eftirlitsyfirvalda um að stofna félög með sérstakan tilgang, fyrir samstarf og upplýsingaskipti milli eftirlitsyfirvalda að því er varðar félög með sérstakan tilgang, sem og form og sniðmát fyrir gögn sem félög með sérstakan tilgang eiga að skila í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/138/EB. Framkvæmdarreglugerð framkvæmda­stjórnar­innar (ESB) 2015/462 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópu­sambands­ins nr. 31. frá 9. maí 2018, bls. 1-19.

4. gr.

Gildistaka.

Reglur þessar eru settar samkvæmt heimild í 2. og 3. mgr. 19. gr. laga nr. 100/2016 um vátrygg­inga­starfsemi. Reglurnar öðlast þegar gildi.

Fjármálaeftirlitinu, 19. nóvember 2018.

Unnur Gunnarsdóttir.

Anna Mjöll Karlsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 3. desember 2018