Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 433/2009

Nr. 433/2009 4. maí 2009

AUGLÝSING
frá landskjörstjórn um breytingu á kjördæmissætum í Norðvesturkjördæmi og Suðvesturkjördæmi.

Landskjörstjórn gerir kunnugt: að í ljósi fjölda kjósenda á kjörskrá að baki hverju þing­sæti við nýafstaðnar alþingiskosningar 25. apríl 2009 skuli við næstu almennu alþingis­kosningar vera átta þingsæti í Norðvesturkjördæmi, sjö kjördæmissæti og eitt jöfnunar­sæti, en þrettán þingsæti í Suðvesturkjördæmi, ellefu kjördæmissæti og tvö jöfnunar­sæti, sbr. 5. mgr. 31. gr. stjórnarskrárinnar, nr. 33/1944, og 9. gr. laga um kosningar til Alþingis, nr. 24/2000.

Reykjavík, 4. maí 2009.

Ástráður Haraldsson.

Bryndís Hlöðversdóttir.

Hervör Þorvaldsdóttir.

Hrafnhildur Stefánsdóttir.

Þórður Bogason.

Ásmundur Helgason.


B deild - Útgáfud.: 6. maí 2009