Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur samþykkt breytingu á deiliskipulagi sem hér segir:
Laxatunga 93. Breytingin nær til lóðarinnar að Laxatungu 93. Í breytingunni felst að í stað tveggja hæða einbýlishúss (E-II A) verður byggt einnar hæðar einbýlishús (E-IX). Að öðru leyti breytast skilmálar ekki.
Ofangreind breyting á deiliskipulagi hefur hlotið meðferð sem skipulagslög nr. 123/2010 mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.
F.h. Mosfellsbæjar, 6. júlí 2017,
Ólafur Melsted skipulagsfulltrúi.
|