Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 591/2023

Nr. 591/2023 1. júní 2023

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 555/2020 um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um rekstraraðila sérhæfðra sjóða.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar eru gerðar á 1. gr. reglugerðarinnar:

  1. Á eftir orðunum „bls. 437-531“ í a-lið 1. mgr. bætist: með breytingum samkvæmt eftir­farandi gerð:
    1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1255 um breytingu á fram­­seldri reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 231/2013 að því er varðar áhættu tengda sjálfbærni og sjálfbærniþætti sem rekstraraðilar sérhæfðra sjóða skulu taka tillit til. Reglu­gerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 37 frá 11. maí 2023, bls. 38-40.
  2. Ný málsgrein bætist við, svohljóðandi: Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 138/2022 frá 29. apríl 2022 um upptöku reglugerðar skv. 1. tölul. a-liðar 1. mgr. í IX. viðauka (frjálsir fjármagnsflutningar) við EES-samninginn er birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi ESB nr. 61 frá 22. september 2022, bls. 90.

 

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 19. og 22.-23. gr. laga um rekstraraðila sérhæfðra sjóða, nr. 45/2020, öðlast þegar gildi.

 

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 1. júní 2023.

 

F. h. r.

Guðrún Þorleifsdóttir.

Elísabet Júlíusdóttir.


B deild - Útgáfud.: 15. júní 2023