Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1165/2023

Nr. 1165/2023 25. október 2023

REGLUGERÐ
um desemberuppbætur á grunnatvinnuleysisbætur.

1. gr.

Reglugerð þessi gildir um desemberuppbætur á grunnatvinnuleysisbætur í desember 2023.

 

2. gr.

Þau sem hafa staðfest atvinnuleit á tímabilinu frá 20. nóvember til 3. desember 2023 og verið skráð án atvinnu hjá Vinnumálastofnun í samtals tíu mánuði eða lengur á árinu 2023 eiga rétt á desemberuppbót að fjárhæð kr. 99.389 enda hafi viðkomandi verið að fullu tryggður skv. III. eða IV. kafla laga um atvinnuleysistryggingar á umræddum tíma.

Biðtími eftir atvinnuleysisbótum skal teljast með við útreikninga skv. 1. mgr. enda hafi við­komandi verið skráður án atvinnu hjá Vinnumálastofnun þann tíma.

 

3. gr.

Þau sem hafa staðfest atvinnuleit á tímabilinu frá 20. nóvember til 3. desember 2023 og verið skráð án atvinnu hjá Vinnumálastofnun samtals í tíu mánuði eða lengur á árinu 2023 en tryggð hlutfallslega samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar á umræddum tíma eiga rétt á hlutfalls­legri desemberuppbót skv. 1. mgr. 2. gr. í samræmi við það tryggingarhlutfall sem um ræðir.

Biðtími eftir atvinnuleysisbótum skal teljast með við útreikninga skv. 1. mgr. enda hafi við­komandi verið skráður án atvinnu hjá Vinnumálastofnun þann tíma.

 

4. gr.

Þau sem hafa staðfest atvinnuleit á tímabilinu frá 20. nóvember til 3. desember 2023 en verið skráð án atvinnu hjá Vinnumálastofnun í skemmri tíma en tíu mánuði á árinu 2023 eiga rétt á hlutfalls­legri desemberuppbót skv. 1. mgr. 2. gr. í samræmi við þann tíma sem viðkomandi hefur verið skráður án atvinnu hjá Vinnumálastofnun enda hafi viðkomandi verið að fullu tryggður skv. III. eða IV. kafla laga um atvinnuleysistryggingar á umræddum tíma, sbr. þó 4. mgr.

Þau sem hafa staðfest atvinnuleit á tímabilinu frá 20. nóvember til 3. desember 2023 en verið skráð án atvinnu hjá Vinnumálastofnun í skemmri tíma en tíu mánuði á árinu 2023 ásamt því að hafa verið tryggð hlutfallslega samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar á umræddum tíma eiga rétt á hlutfallslegri desemberuppbót skv. 1. mgr. 2. gr. í samræmi við það tryggingarhlutfall sem um ræðir og þann tíma sem viðkomandi hefur verið skráður án atvinnu hjá Vinnumálastofnun á árinu 2023, sbr. þó 4. mgr.

Biðtími eftir atvinnuleysisbótum skal teljast með við útreikninga skv. 1. eða 2. mgr. enda hafi viðkomandi verið skráður án atvinnu hjá Vinnumálastofnun þann tíma.

Þrátt fyrir 1.–3. mgr. skal desemberuppbót aldrei nema lægri fjárhæð en kr. 24.847.

 

5. gr.

Þau sem eiga rétt á desemberuppbót samkvæmt reglugerð þessari og hafa framfærsluskyldu gagnvart barni eða börnum yngri en 18 ára eiga rétt á 6% af óskertri desemberuppbót, sbr. 1. mgr. 2. gr., með hverju barni.

 

6. gr.

Vinnumálastofnun skal greiða út desemberuppbætur samkvæmt reglugerð þessari eigi síðar en 15. desember 2023.

 

7. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 3. mgr. 33. gr. og 64. gr. laga nr. 54/2006, um atvinnuleysistryggingar, öðlast þegar gildi.

 

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu, 25. október 2023.

 

Guðmundur Ingi Guðbrandsson.

Bjarnheiður Gautadóttir.


B deild - Útgáfud.: 8. nóvember 2023