Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 395/2021

Nr. 395/2021 25. mars 2021

REGLUGERÐ
um (8.) breytingu á reglugerð nr. 1155/2013 um styrki vegna hjálpartækja.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á fylgiskjalinu „Hjálpartæki Sjúkratrygginga Íslands“ með reglu­gerðinni:

a) Í flokknum 0419 Hjálpartæki til lyfjaskömmtunar verður eftirfarandi breyting:
  b-liður 1. mgr. verður svohljóðandi:
  b) 200/750/1100/2000/2500 stk. á 12 mánaða tímabili fyrir þá sem nota nema sem skannar/síritar blóðsykur og fá 200/750/1100/2000/2500 stk. blóðstrimla á sama tímabili.
b) Í flokknum 0424 Búnaður (tæki og efni) til mælinga (efnamælinga) verður eftirfarandi breyt­ing:
  a. Á eftir „200/750/1100“ í 1. mgr. b-liðar kemur: /2000/2500.
  b. Á eftir „4/15/22“ í 1. mgr. b-liðar kemur: /40/50.

 

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 1. mgr. 26. gr. laga nr. 112/2008, um sjúkratryggingar, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

 

Heilbrigðisráðuneytinu, 25. mars 2021.

 

Svandís Svavarsdóttir.

Elsa B. Friðfinnsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 12. apríl 2021