Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 796/2019

Nr. 796/2019 6. ágúst 2019

REGLUGERÐ
um breyting á reglugerð um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Líbíu nr. 887/2015, ásamt síðari breytingum.

1. gr.

Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. og 2. tölul. 1. mgr. 2. gr. reglugerðar um þvingunar­aðgerðir varðandi Líbýu nr. 887/2015:

  1.28 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2018/2012 frá 17. desember 2018 um framkvæmd ákvörð­unar (SSUÖ) 2015/1333 um þvingunaraðgerðir með tilliti til ástandsins í Líbíu, sbr. fylgiskjal 1.28.
  1.29 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2019/539 frá 1. apríl 2019 um framkvæmd ákvörð­unar (SSUÖ) 2015/1333 um þvingunaraðgerðir með tilliti til ástandsins í Líbíu, sbr. fylgiskjal 1.29.
  2.25 Reglugerð ráðsins (ESB) 2018/2004 frá 17. desember 2018 um breytingu á reglugerð (ESB) 2016/44 um þvingunaraðgerðir með tilliti til ástandsins í Líbíu, sbr. fylgiskjal 2.25.

2. gr.

Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þving­unaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.

Utanríkisráðuneytinu, 6. ágúst 2019.

Guðlaugur Þór Þórðarson.

Sturla Sigurjónsson.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)


B deild - Útgáfud.: 11. september 2019