Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 454/2021

Nr. 454/2021 12. apríl 2021

REGLUGERÐ
um (17.) breytingu á reglugerð nr. 41/2012 um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 999/2001 um setningu reglna um forvarnir gegn, eftirlit með og útrýmingu tiltekinna tegunda smitandi heilahrörnunar.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 60. tölul., svohljóðandi:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/772 frá 11. júní 2020 um breytingu á I., VII. og VIII. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 999/2001 að því er varðar ráðstafanir til að útrýma smitandi svampheilakvilla í geitum og búfjárkynjum í útrým­ingar­hættu. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndar­innar nr. 1/2021, frá 5. febrúar 2021. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi Evrópusambandsins nr. 22, frá 25. mars 2021, bls. 121.

 

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í lögum nr. 93/1995, um matvæli og lögum nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, með síðari breytingum.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 12. apríl 2021.

 

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Iðunn Guðjónsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 28. apríl 2021