Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 23/2016

Nr. 23/2016 22. janúar 2016

REGLUGERÐ
um (1.) breytingu á reglugerð nr. 943/2015 um loðnuveiðar íslenskra skipa á haust- og vetrarvertíð 2015 til 2016.

1. gr.

2. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Aðeins skipum sem hafa aflamark í loðnu er heimilt að stunda loðnuveiðar. Veiðar umfram aflamark í loðnu varða gjaldtöku samkvæmt ákvæðum laga nr. 37/1992, um sérstakt gjald vegna ólöglegs sjávarafla.

Leyfilegur hámarksafli íslenskra loðnuveiðiskipa á loðnuvertíðinni er sem hér segir:

A B C
Lestir Lestir Lestir
100.315 5.317 94.998

Skýringar á töflu:

  1. Leyfilegur heildarafli.
  2. Skerðing skv. 3. mgr. 8. gr. laga nr. 116/2006 (5,3%).
  3. Fiskistofa úthlutar til skipa á grundvelli aflahlutdeildar.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða og laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 22. janúar 2016.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Jóhann Guðmundsson.

Baldur P. Erlingsson.


B deild - Útgáfud.: 22. janúar 2016