Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 156/2019

Nr. 156/2019 27. desember 2019

FORSETAÚRSKURÐUR
um breytingu á forsetaúrskurði nr. 120/2018, um skiptingu starfa ráðherra, með síðari breytingum.

Forseti Íslands
gjörir kunnugt:

Samkvæmt tillögu forsætisráðherra og með skírskotun til 15. gr. stjórnarskrárinnar, laga um Stjórnarráð Íslands, forsetaúrskurðar um skiptingu Stjórnarráðs Íslands í ráðuneyti og forseta­úrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands er hér með gerð eftir­farandi breyting á forsetaúrskurði nr. 120/2018, um skiptingu starfa ráðherra, með síðari breyt­ingum.

1. gr.

Í stað embættisheitisins „utanríkisráðherra“ í 10. gr. úrskurðarins kemur: utanríkis- og þróunar­samvinnu­ráðherra.

2. gr.

Forsetaúrskurður þessi öðlast gildi 1. janúar 2020.

Gjört á Bessastöðum, 27. desember 2019.

Guðni Th. Jóhannesson.
(L. S.)

Katrín Jakobsdóttir.


A deild - Útgáfud.: 30. desember 2019