Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 588/2017

Nr. 588/2017 26. júní 2017

AUGLÝSING
um breytingu á gjaldskrá Hitaveitu Öxarfjarðarhéraðs hf., nr. 254/2003.

Samkvæmt orkulögum nr. 58/1967, með síðari breytingum, hefur ráðuneytið staðfest eftirfarandi breytingar á gjaldskrá Hitaveitu Öxarfjarðarhéraðs hf., nr. 254/2003, er öðlist gildi við birtingu í Stjórnartíðindum:

4. gr. breytist og orðist svo:
Hver lítri á mínútu kostar kr. 47.136. á ári, án fastagjalds og virðisaukaskatts.
Notendur sem kaupa 4 l/mín., eða minna greiða einnig fastagjald kr. 21.168. á ári auk virðisaukaskatts.

5. gr. breytist og orðist svo:
Fyrirtæki sem samið hafa um kaup á heitu vatni samkvæmt rennslismæli greiða kr. 153,02 fyrir rúmmetra vatns auk virðisaukaskatts, en greiða þá að lágmarki samkvæmt samningi um fastan lítrafjölda.

6. gr. breytist og orðist svo:
Stofngjöld fyrir Hitaveitu Öxarfjarðarhéraðs hf. eru sem hér segir:

a) fyrir lögbýli kr. 2.305.165
b) fyrir íbúðarhús kr.    610.172
c) fyrir sumarhús kr.    430.100
d) fyrir aðra aðila kr.    152.950 á mínútulítra

Lágmarksinntak er 2,5 l/mín.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 23. júní 2017.

F. h. ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra,

Kristján Skarphéðinsson.

Hreinn Hrafnkelsson.


B deild - Útgáfud.: 30. júní 2017