Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1407/2021

Nr. 1407/2021 7. desember 2021

REGLUGERÐ
um desemberuppbætur á grunnatvinnuleysisbætur.

1. gr.

Reglugerð þessi gildir um desemberuppbætur á grunnatvinnuleysisbætur í desember 2021.

 

2. gr.

Sá sem hefur staðfest atvinnuleit á tímabilinu frá 20. nóvember til 3. desember 2021 og verið skráður án atvinnu hjá Vinnumálastofnun í samtals tíu mánuði eða lengur á árinu 2021 á rétt á desemberuppbót að fjárhæð kr. 92.229 enda hafi viðkomandi verið að fullu tryggður skv. III. eða IV. kafla laga um atvinnuleysistryggingar á umræddum tíma.

Biðtími eftir atvinnuleysisbótum skal teljast með við útreikninga skv. 1. mgr. enda hafi við­komandi verið skráður án atvinnu hjá Vinnumálastofnun þann tíma.

 

3. gr.

Sá sem hefur staðfest atvinnuleit á tímabilinu frá 20. nóvember til 3. desember 2021 og verið skráður án atvinnu hjá Vinnumálastofnun samtals í tíu mánuði eða lengur á árinu 2021 en tryggður hlutfallslega samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar á umræddum tíma á rétt á hlutfallslegri desemberuppbót skv. 1. mgr. 2. gr. í samræmi við það tryggingarhlutfall sem um ræðir.

Biðtími eftir atvinnuleysisbótum skal teljast með við útreikninga skv. 1. mgr. enda hafi við­komandi verið skráður án atvinnu hjá Vinnumálastofnun þann tíma.

 

4. gr.

Sá sem hefur staðfest atvinnuleit á tímabilinu frá 20. nóvember til 3. desember 2021 en verið skráður án atvinnu hjá Vinnumálastofnun í skemmri tíma en tíu mánuði á árinu 2021 á rétt á hlutfallslegri desemberuppbót skv. 1. mgr. 2. gr. í samræmi við þann tíma sem hann hefur verið skráður án atvinnu hjá Vinnumálastofnun enda hafi viðkomandi verið að fullu tryggður skv. III. eða IV. kafla laga um atvinnuleysistryggingar á umræddum tíma, sbr. þó 4. mgr.

Sá sem hefur staðfest atvinnuleit á tímabilinu frá 20. nóvember til 3. desember 2021 en verið skráður án atvinnu hjá Vinnumálastofnun í skemmri tíma en tíu mánuði á árinu 2021 ásamt því að hafa verið tryggður hlutfallslega samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar á umræddum tíma á rétt á hlutfallslegri desemberuppbót skv. 1. mgr. 2. gr. í samræmi við það tryggingarhlutfall sem um ræðir og þann tíma sem hann hefur verið skráður án atvinnu hjá Vinnumálastofnun á árinu 2021, sbr. þó 4. mgr.

Biðtími eftir atvinnuleysisbótum skal teljast með við útreikninga skv. 1. eða 2. mgr. enda hafi viðkomandi verið skráður án atvinnu hjá Vinnumálastofnun þann tíma.

Þrátt fyrir 1.–3. mgr. skal desemberuppbót aldrei nema lægri fjárhæð en kr. 23.057.

 

5. gr.

Vinnumálastofnun skal greiða út desemberuppbætur samkvæmt reglugerð þessari eigi síðar en 15. desember 2021.

 

6. gr.

Sá sem á rétt á desemberuppbót samkvæmt reglugerð þessari og hefur framfærsluskyldu gagn­vart barni eða börnum yngri en 18 ára á rétt á 6% af óskertri desemberuppbót, sbr. 1. mgr. 2. gr., með hverju barni.

 

7. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 3. mgr. 33. gr. og 64. gr. laga nr. 54/2006, um atvinnuleysistryggingar, öðlast þegar gildi.

 

Félagsmálaráðuneytinu, 7. desember 2021.

 

Guðmundur Ingi Guðbrandsson
félagsmála- og vinnumarkaðsráðherra.

Bjarnheiður Gautadótir.


B deild - Útgáfud.: 9. desember 2021