1. gr.
1. málsliður 2. mgr. 6. gr. reglnanna orðast svo: Sæti í deild – og þar með seturétt og tillögurétt á deildarfundum – eiga aðjúnktar, lektorar, dósentar og prófessorar sem ráðnir eru í stöðu við deildina, einn fulltrúi stundakennara við deildina og einn fulltrúi nemenda sem tilnefndur er af félagssamtökum þeirra til eins árs í senn.
2. gr.
Reglur þessar, sem samþykktar voru af háskólaráði, eru settar með heimild í lögum nr. 85/2008 um opinbera háskóla, með síðari breytingum, sbr. einnig 14. gr. reglna fyrir Háskólann á Akureyri nr. 387/2009, öðlast þegar gildi.
Háskólinn á Akureyri, 4. maí 2021.
Eyjólfur Guðmundsson rektor.
|