Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 956/2020

Nr. 956/2020 30. september 2020

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um áhættusöm þriðju lönd vegna aðgerða gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, nr. 105/2020.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, töluliður 5, svohljóðandi:

  1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/855 frá 7. maí 2020 um breyt­ingu á framseldri reglugerð (ESB) 2016/1675 um viðbætur við tilskipun Evrópu­þings­ins og ráðsins (ESB) 2015/849, að því er varðar að bæta Bahamaeyjum, Barbados, Botsvana, Kambódíu, Ghana, Jamaíku, Máritíus, Mongólíu, Mjanmar/Búrma, Níkaragva, Panama og Simbabve í töfluna í I. lið í við­aukanum, sem vísað er til í IX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndar­innar nr. 252/2018 frá 5. des­ember 2018 og fjarlægja Bosníu og Hersegóvínu, Eþíópíu, Gvæjana, Laoska alþýðulýðveldið, Srí Lanka og Túnis úr töflunni. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 62, 24. september 2020, bls. 276.

 

2. gr.

Listi yfir áhættusöm þriðju lönd, sem birtur er sem fylgiskjal við reglugerð nr. 105/2020, tekur breytingum til samræmis við þær breytingar sem greinir í 1. gr. reglugerðar þessarar. Listinn er birtur sem fylgiskjal við reglugerð þessa þannig breyttur.

 

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 56. gr. laga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjár­mögnun hryðjuverka nr. 140/2018 og öðlast þegar gildi.

 

Dómsmálaráðuneytinu, 30. september 2020.

 

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir.

Haukur Guðmundsson.

 

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)


B deild - Útgáfud.: 2. október 2020