Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 32/2019

Nr. 32/2019 23. janúar 2019

REGLUGERÐ
um (1.) breytingu á reglugerð nr. 1263/2018 um stuðning við garðyrkju.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 19. gr. reglugerðarinnar:

a) 1. málsl. 1. mgr. hljóðar svo: Magnliðir og fastagjald í gjaldskrá dreifiveitu fyrir flutning og dreifingu skulu greiddir niður um allt að 95%, en framleiðendur garðyrkjuafurða skulu greiða að lágmarki 5%.
b) 2. málsl. 1. mgr. fellur brott.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í búvörulögum nr. 99/1993, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 23. janúar 2019.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Ása Þórhildur Þórðardóttir.


B deild - Útgáfud.: 23. janúar 2019