Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 278/2020

Nr. 278/2020 30. mars 2020

REGLUGERÐ
um (1.) breytingu á reglugerð nr. 1255/2019, um stjórn veiða íslenskra skipa úr norsk-íslenska síldarstofninum árið 2020.

1. gr.

2. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar hljóði svo:

Fyrir tímabilið 1. janúar 2020 til 31. desember 2020 er leyfilegur heildarafli sem hér segir (magn í lestum):

A B C
91.243 4.836 86.407
  1. Leyfilegur heildarafli.
  2. Skerðing skv. 3. mgr. 8. gr. laga nr. 116/2006 (5,3%).
  3. Fiskistofa úthlutar til skipa á grundvelli aflahlutdeildar.

 

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar og laga nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 30. mars 2020.

 

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Jóhann Guðmundsson.


B deild - Útgáfud.: 31. mars 2020