Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1232/2016

Nr. 1232/2016 15. desember 2016

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 667/1995, um framtal og skil á virðisaukaskatti, með síðari breytingum.

1. gr.

Í stað „3.000.000 kr.“ í 2. málsl. 2. gr. reglugerðarinnar kemur: 4.000.000 kr.

2. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað „3.000.000 kr.“ í 1. mgr. kemur: 4.000.000 kr.
  2. 3. tölul. 2. mgr. fellur brott.
  3. Í stað „100.000 kr.“ í 6. tölul. 3. mgr. kemur: 200.000 kr.
  4. Í stað „150.000 kr.“ í 2. málsl. 4. mgr. kemur: 200.000 kr.
  5. Í stað orðanna „hafi farið umfram 3.000.000 kr.“ í 5. mgr. kemur: er orðin 4.000.000 kr. eða hærri.
  6. 1. málsl. 6. mgr. orðast svo: Þegar velta þess aðila sem notar almanaksárið sem uppgjörs­tímabil er orðin 4.000.000 kr. eða hærri skal hann á næsta gjalddaga almennra uppgjörs­tímabila, sbr. 1. gr., gera upp mismun þess útskatts og innskatts sem fallið hefur á sölu og kaup hans á almanaksárinu.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 1. mgr. 24. gr. og 1. mgr. 49. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2017.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 15. desember 2016.

F. h. r.

Maríanna Jónasdóttir.

Hlynur Ingason.


B deild - Útgáfud.: 30. desember 2016