1. gr.
Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar er heimilt að leggja á árlegt sorphirðugjald (urðunar- og sorphreinsigjald).
2. gr.
Sorphirðugjaldið er lagt á hverja íbúð í lögsagnarumdæmi Dalvíkurbyggðar og er það innheimt með fasteignagjöldum eða á annan hátt eftir því sem við verður komið og þá með sömu gjalddögum og fasteignagjöld. Auk þess er lagt hálft íbúðargjald á frístundahús sem innheimt er með sama hætti.
Búrekstraraðilum er gefinn kostur á að greiða sérstaklega fyrir ílát undir búrekstrarúrgang, flutning hans og förgun samkvæmt gjaldskrá þessari. Þá er lagt á búfjáreigendur sérstakt gjald til að standa straum af kostnaði við förgun dýraleifa og tekur gjaldið mið af því að það standi undir kostnaði við förgunina.
3. gr.
Sorphirðugjaldið og fyrirkomulag móttöku á endurvinnslustöð á Dalvík er sem hér greinir:
- Íbúðir, sorphirðugjald, kr. 70.311.
- Frístundahús, sorphirðugjald, kr. 35.156.
- Í upphafi árs er úthlutað einu klippikorti á íbúð (16 klipp) og sumarhús (8 klipp) sem afhent eru í þjónustuveri Ráðhússins á Dalvík. Notendur þurfa að framvísa klippikortinu til að komast inn á endurvinnslustöðina á Dalvík. Leigjendur verða að nálgast kortin hjá leigusala eða að kaupa sér kort.
- Klippt verður fyrir gjaldskyldan úrgang á meðan tekið verður á móti ógjaldskyldum úrgangi án greiðslu. Skylt er að hafa klippikortið meðferðis þegar farið er á endurvinnslustöðina hvort sem um gjaldskyldan eða ógjaldskyldan úrgang er að ræða.
- Hvert klipp er fyrir 0,25 m³ sem samsvarar 240 l heimilistunnu. Ef kort klárast verður hægt að kaupa aukakort á kr.16.536.
- Rekstraraðilar geta keypt klippikort í þjónustuveri á kr. 40.242 með 16 klipp fyrir 0,25 m³ alls 4 m³.
- Ekki er tekið gjald fyrir móttöku á flokkuðum úrgangi sem ber úrvinnslugjald frá íbúðum og sumarhúsum, svo sem: pappaumbúðum, plastumbúðum, hjólbörðum, ýmsum spilliefnum og úreltum ökutækjum.
4. gr.
Úrvinnslugjald vegna úrgangs frá búrekstri og dýraleifa er eftirfarandi:
- 240 lítra tunna fyrir almennan úrgang losuð tvisvar í mánuði 48.352 kr./ári.
- 360 lítra tunna fyrir almennan úrgang losuð tvisvar í mánuði 64.474 kr./ári.
- 240 lítra endurvinnslutunna losuð einu sinni í mánuði 23.944 kr./ári.
- Gjald fyrir eyðingu dýraleifa er lagt á heildarfjölda hverrar búfjártegundar samkvæmt búfjáreftirlitsskýrslu og er eftirfarandi:
Nautgripir |
1.475 kr./grip |
Sauðfé og geitfé |
271 kr./grip |
Hross |
579 kr./grip |
Grísir |
958 kr./grip |
5. gr.
Gjaldskrá þessi var samþykkt af sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar í nóvember 2023, samanber 23. gr. laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs og 59. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998.
Gjaldskráin öðlast gildi 1. janúar 2024, um leið fellur gjaldskrá um sorphirðu í Dalvíkurbyggð nr. 1584/2022 úr gildi.
Samþykkt á fundi byggðarráðs Dalvíkurbyggðar í nóvember 2023.
Dalvíkurbyggð, 12. desember 2023.
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri.
|