Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1591/2023

Nr. 1591/2023 12. desember 2023

GJALDSKRÁ
byggingarfulltrúa Dalvíkurbyggðar.

1. gr.

Fyrir yfirferð og samþykkt aðaluppdrátta og fylgiskjala þeirra, sem gerðir eru vegna nýbygg­inga, viðbygginga og breytinga á eldri byggingum í umdæmi Dalvíkurbyggðar, skal byggingar­fulltrúinn í Dalvíkurbyggð í umboði sveitarstjóra innheimta byggingarleyfisgjöld samkvæmt gjald­skrá þessari.

 

2. gr.

Byggingarleyfisgjöld.

Gjöldin miðast við eina yfirferð aðaluppdrátta. Innifalið er byggingarleyfi, útmæling innan bygg­ingar­reits, lögboðið byggingareftirlit, lögbundnar úttektir, fokheldisvottorð og vottorð um loka­úttekt.

  Tegund bygginga Afgreiðslugjald, kr. Fermetragjald, kr.
A Íbúðarhúsnæði, bílgeymslur og gistihús 120.982 302
B Stofnanir, verslunar- og þjónustuhús 120.985 153
C Frístundahús 90.735 302
D Gripahús, iðnaðarhús og sérbyggðar bílgeymslur 90.735 1.262
E Vélageymslur, gróðurhús og loðdýrahús 90.735 78
F Aðstöðuhús, geymslur, gestahús og sambærilegt 45.368 302

 

Vegna viðbyggingar við áður byggð hús skal greiða kr. 45.368 afgreiðslugjald og fermetragjald samkvæmt töflu um viðeigandi hús.

 

3. gr.

Fermetragjald samkvæmt 2. gr. skal reikna af brúttóflatarmáli sbr. ákvæði ÍST 50, án svala og C rýma. Fermetra skal námunda í heilan fermetra samkvæmt almennum reiknireglum.

 

4. gr.

Gjalddagi lágmarksgjalds er áður en byggingaframkvæmdir hefjast. Gjalddagi fermetragjalds er áður en byggingaframkvæmdir hefjast. Byggingarfulltrúa er óheimil útgáfa byggingarleyfis, eða tak­markaðs byggingarleyfis, fyrr en byggingarleyfisgjald hefur verið greitt.

 

5. gr.

Byggingarleyfisgjald verður ekki endurgreitt falli byggingarleyfishafi frá notkun leyfisins eða það fellur úr gildi.

 

6. gr.

Fyrir þjónustu sem veitt er af hálfu byggingarfulltrúa í umdæmi Dalvíkurbyggðar, skal bygg­ingar­fulltrúinn í Dalvíkurbyggð í umboði sveitarstjóra innheimta þjónustugjöld samkvæmt gjaldskrá þessari.

 

7. gr.

Afgreiðslu- og þjónustugjöld.

Fyrir ýmsa þjónustu sem byggingarfulltrúi veitir greiðast eftirfarandi gjöld:

Nr Tegund þjónustu Gjald, kr.
1. Afgreiðslugjald, fast gjald á aðra liði en um getur í 2. og 8. gr. Gjaldið greiðist fyrir hverja einstaka afgreiðslu umhverfisráðs 2.953
2. Stöðuleyfi, árgjald sem greiðist einu sinni á ári  
  a)   Hjólhýsi o.þ.h. 35.737
  b)   Gámar:  
        Upp að 20 fetum að stærð 18.146
        40 fet að stærð 36.294
3. Lóðarúthlutunargjald, óendurkræft þó lóðinni sé skilað til sveitarfélagsins 118.915
4. Yfirferð eignaskiptalýsingar 61.564
5. Umsögn vegna vínveitinga- og rekstrarleyfa 12.311
6. Fyrir húsaleiguúttekt 12.311
7. Fyrir úttekt á verkstöðu vegna lánveitingar 12.311
8. Útprentun á A3 150
9. Útprentun á A4 77
10. Nýr lóðarleigusamningur 61.543
11. Breytingar á lóðarblaði eða gerð nýs lóðarblaðs 24.194
12. Endurskoðun aðaluppdráttar 21.501
13. Minniháttar breytingar á innra skipulagi og útliti húsa 22.690
14. Framkvæmdaleyfi 40.652
15. Endurnýjun leyfis án breytinga 16.130
16. Meiriháttar breytingar á samþykktu deiliskipulagi aðkeypt vinna Skv. reikningi
17. Veruleg eða óveruleg breyting á aðalskipulagi aðkeypt vinna Skv. reikningi
18. Þinglýsing lóðarleigusamninga Skv. reikningi
19. Umsýslu- og auglýsingakostnaður v/skipulagsgerðar, verulegar breytingar 76.509
20. Umsýslu- og auglýsingakostnaður v/skipulagsgerðar, óverulegar breytingar 51.002
21. Afgreiðslugjald á grenndarkynningu 11.476
22. Grenndarkynning Skv. reikningi

 

8. gr.

Gjaldskráin uppreiknast til hækkunar um 4,9% samkvæmt ákvörðun sveitarstjórnar að hausti 2023.

 

9. gr.

Gjaldskrá þessi var samþykkt af sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar með heimild í 51. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010 ásamt 20. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast gildi 1. janúar 2024.

Gjöld samkvæmt gjaldskránni má innheimta með fjárnámi, sbr. 3. mgr. 53. gr. laga um mann­virki nr. 160/2010. Jafnframt fellur gjaldskrá byggingarfulltrúa Dalvíkurbyggðar nr. 1580/2022 úr gildi.

Samþykkt í umhverfis- og dreifbýlisráði Dalvíkurbyggðar 20. október 2023.

Samþykkt í sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar 28. nóvember 2023.

 

Dalvík, 12. desember 2023.

 

Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri.


B deild - Útgáfud.: 29. desember 2023