1. gr.
Í stað „Tímagjald skv. viðauka I, 1. gr. lið b“, í gjaldalið 2.3.3 í fylgiskjali með auglýsingunni kemur: Tímagjald skv. viðauka I, 1. gr. lið d.
2. gr.
Á eftir gjaldalið 2.1.9 í fylgiskjali með auglýsingunni kemur nýr gjaldaliður 2.1.10: Gjald fyrir útgáfu lofthæfisskírteinis til útflutnings er helmingur gjalds fyrir fyrstu útgáfu.
Gjald fyrir fyrstu útgáfu lofthæfisskírteinis loftfars sem ekki er vélknúið er 25% af gjaldi fyrir vélknúin loftför.
3. gr.
Auglýsing þessi er sett með heimild í III. kafla, sbr. 1. tl. 1. mgr. 7. gr. og 6.-7. mgr. 12. gr. laga nr. 119/2012 um Samgöngustofu, stjórnsýslustofnun samgöngumála, og öðlast þegar gildi.
Innanríkisráðuneytinu, 21. mars 2016.
Ólöf Nordal.
Ragnhildur Hjaltadóttir.
|