Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1102/2014

Nr. 1102/2014 4. desember 2014
GJALDSKRÁ
Hitaveitu Flúða.

1. Almennt.

Verðskrá þessi gildir fyrir veitusvæði Hitaveitu Flúða.

Skattur á smásöluverð á heitu vatni samkvæmt lögum um umhverfis- og auðlindaskatta og virðisaukaskattur samkvæmt gildandi reglum um virðisaukaskatt bætast við gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari miðað við gildandi reglur á hverjum tíma.

2. Varmaorka.

2.1 Fast gjald er háð afköstum rennslismælis en óháð töxtum að öðru leyti.

 

Fast gjald á mæli

kr./dag

 

Mælastærð DN 15

43,25

 

Mælastærð DN 20

53,16

 

Mælastærð DN 25

69,49

 

Mælastærð DN 32

87,71

 

Mælastærð DN 40

104,64

 

Mælastærð DN 50

174,64

Fasta gjaldinu er dreift niður á tímabil reikninga.

2.2 Rúmmetragjald.

Varmaorka er afhent í formi heits vatns sem selt er samkvæmt rúmmetramælingu. Ekki er veittur afsláttur vegna takmörkunar á afhendingu varmaorku og/eða lækkun á hita vatnsins.

H 1. Almenn heitavatnsnotkun.

Taxtinn gildir fyrir upphitun, almenna heimilisnotkun og snjóbræðslu.

 

Sala um mæli

kr./m³

 

Rúmmetragjald skv. mælingu

77,37

H 2. Taxtinn gildir fyrir iðnaðarfyrirtæki og landbúnað.

 

Atvinnufyrirtæki til framleiðslu

62,13

H 3. Taxtinn gildir fyrir gróðurhús sem framleiða garðyrkjuafurðir.

Garðyrkja 28,06

H 4. Heimæðagjöld.

Heimæðagjöld skiptast eftir málstærð heimtaugar.

 

Heimæðagjöld - almenn

 

kr.  

 

Málstærð DN 20 mm

 

219.674

 

Málstærð DN 25 mm

 

270.539

 

Málstærð DN 32 mm

 

406.274

 

Málstærð DN 40 mm

 

811.107

 

Málstærð DN 50 mm

 

1.346.905

Heimæðagjöld fyrir stærri inntök en 50 mm skal reikna sérstaklega.

Gjald fyrir hvern lengdarmetra í heimæð, umfram 25 m er 1% af heimæðagjaldi.

Heimæðagjöld á svæðum þar sem ekki er hitaveita fyrir skal reikna sérstaklega.

 

Heimæðagjöld - sumarhús

kr.   

 

20 mm

 

531.402

 

25 mm

 

950.851

Heimæðagjöld fyrir lengri heimæðar en 25 m skal reikna sérstaklega.

Heimæðagjöld á svæðum þar sem ekki er hitaveita fyrir skal reikna sérstaklega.

3. Önnur gjöld og ákvæði.

 

Gjald fyrir aukaálestur hjá notanda

2.071 kr.

 

Lokunargjald

4.026 kr.

Við stækkun atvinnuhúsnæðis skal semja sérstaklega um gjald vegna stækkunar á heimtaugum og aukningu á vatnsnotkun.

Þeir sem taka vatn gegnum gróðurhús til upphitunar á pökkunar- og geymsluhúsnæði, skulu greiða fast gjald sem hér segir:

 

Fyrir hvern m³ húsnæðis á mánuði

28,91 kr.

Gjaldskrá þessi sem samþykkt var í veitustjórn þann 20. október 2014 og síðan af hreppsnefnd Hrunamannahrepps 6. nóvember 2014 er hér með staðfest samkvæmt orkulögum, nr. 58/1967, með síðari breytingum og reglugerð um Hitaveitu Flúða nr. 729/2003 til að öðlast gildi við birtingu í Stjórnartíðindum. Jafnframt er úr gildi felld eldri gjaldskrá nr. 1120/2013.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 4. desember 2014.

F. h. iðnaðar- og viðskiptaráðherra,

Kristján Skarphéðinsson.

Hreinn Hrafnkelsson.

B deild - Útgáfud.: 19. desember 2014