Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1075/2022

Nr. 1075/2022 9. september 2022

AUGLÝSING
um fyrirkomulag kennslu, prófa og námsmats háskólaárið 2022‒2023.

Þrátt fyrir ákvæði reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009 og annarra reglna Háskólans sem í gildi eru um kennslu, fyrirkomulag prófa og námsmats gildir eftirfarandi ákvæði um háskólaárið 2022‒2023:

Í ljósi aðstæðna sem kunna að skapast svo sem vegna COVID-19 veirufaraldursins og fyrirmæla stjórnvalda í því efni og þar með mögulegra áhrifa á starfsemi Háskóla Íslands, er fræðasviðum og deildum heimilt í nánu samráði við kennslusvið að ákveða með hvaða hætti framkvæmd kennslu, prófa og námsmats vegna haust- og vormisseris háskólaársins 2022‒2023 verður fyrir komið. Tryggt verði eftir föngum að gera nemendum kleift að stunda nám og ljúka þeim námskeiðum sem þeir eru skráðir í. Um námsmat fer eftir gildandi reglum eftir því sem frekast er unnt.

Auglýsing þessi, sem háskólaráð hefur samþykkt, er birt með stoð í lögum nr. 85/2008 um opin­bera háskóla og taka ákvæði hennar þegar gildi.

 

Háskóla Íslands, 9. september 2022.

 

Jón Atli Benediktsson.

Þórður Kristinsson.


B deild - Útgáfud.: 23. september 2022