Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 56/2023

Nr. 56/2023 13. janúar 2023

REGLUGERÐ
um breyting á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Lýðstjórnarlýðveldið Kongó, nr. 800/2015.

1. gr.

Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar, í réttri númeraröð:

  1.21 Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2022/1020 frá 27. júní 2022 um framkvæmd ákvörðunar 2010/788/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Lýðstjórnar­lýðveldinu Kongó, sbr. fylgiskjal 1.21.
  1.22 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2022/2241 frá 14. nóvember 2022 um breytingu á ákvörðun 2010/788/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, sbr. fylgiskjal 1.22.
  1.23 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2022/2377 frá 5. desember 2022 um breytingu á ákvörðun 2010/788/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, sbr. fylgiskjal 1.23.
  1.24 Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2022/2398 frá 8. desember 2022 um fram­kvæmd ákvörðunar 2010/788/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Lýðstjórnar­lýðveldinu Kongó, sbr. fylgiskjal 1.24.
  1.25 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2022/2412 frá 8. desember 2022 um breytingu á ákvörðun 2010/788/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, sbr. fylgiskjal 1.25.
  2.23 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2022/1009 frá 27. júní 2022 um framkvæmd reglu­gerðar ráðsins (EB) nr. 1183/2005 varðandi þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Lýðstjórnar­lýðveldinu Kongó, sbr. fylgiskjal 2.23.
  2.24 Reglugerð ráðsins (ESB) 2022/2237 frá 14. nóvember 2022 um breytingu á reglugerð ráðsins (EB) nr. 1183/2005 varðandi þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Lýðstjórnar­lýðveldinu Kongó, sbr. fylgiskjal 2.24.
  2.25 Reglugerð ráðsins (ESB) 2022/2373 frá 5. desember 2022 um breytingu á reglugerð ráðsins (EB) nr. 1183/2005 varðandi þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Lýðstjórnar­lýðveldinu Kongó, sbr. fylgiskjal 2.25.
  2.26 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2022/2397 frá 8. desember 2022 um framkvæmd reglugerðar ráðsins (EB) nr. 1183/2005 varðandi þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, sbr. fylgiskjal 2.26.
  2.27 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2022/2401 frá 8. desember 2022 um framkvæmd 9. gr. í reglugerð ráðsins (EB) nr. 1183/2005 varðandi þvingunaraðgerðir í ljósi ástand­sins í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, sbr. fylgiskjal 2.27.

 

2. gr.

Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þving­unaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.

 

Utanríkisráðuneytinu, 13. janúar 2023.

 

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.

Martin Eyjólfsson.

 

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)


B deild - Útgáfud.: 30. janúar 2023