Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1204/2014

Nr. 1204/2014 17. desember 2014
GJALDSKRÁ
Hitaveitu Fjarðabyggðar.

1. gr.

Hitaveita Fjarðabyggðar selur afnot af heitu vatni úr veitukerfi sínu samkvæmt verðskrá þessari og reglugerð hitaveitunnar fyrir heitt vatn nr. 908/2005. Gjöld samkvæmt gjald­skrá þessari eru gefin upp án skatts á smásöluverð á heitu vatni og virðisauka­skatts, nema annað sé tekið fram, og leggjast þessir skattar á þau skv. gildandi reglum á hverjum tíma. Virðisaukaskattur á sölu á heitu vatni til hitunar húsa og laugarvatns er 11%.

2. gr.

Ekki er takmarkaður aðgangur húsveitu að heitu vatni umfram það sem heimæð og veitukerfi gera. Hitaveitu Fjarðabyggðar er heimilt að setja upp búnað hjá notanda, sem tryggir aðra notendur gegn óeðlilegum þrýstingsbreytingum og er starfsmönnum veit­unnar einum heimilt að breyta stillingu búnaðarins.

3. gr.

Seðilgjald kr. 210 leggst á útsenda prentaða reikninga en hægt er að komast hjá gjaldinu með því að nýta greiðslukortaþjónustu eða beingreiðslur í banka. Reikningar birtast í heimabönkum þeirra sem nýta sér slíka þjónustu.

4. gr.

Reikninga skal greiða á eindaga. Séu reikningar ekki greiddir á eindaga er send út til­kynn­ing um vanskil. Reikningar eru því næst sendir til innheimtuaðila. Vextir leggjast við skuldina sé ekki greitt á eindaga.

5. gr.

Hitaveitugjöld eru krafin mánaðarlega. Áætlunarreikningur er sendur út ellefu mánuði ársins en hann byggir á fyrri notkun. Einu sinni á ári er sendur uppgjörsreikningur sem er byggður á álestri og er hann uppgjör á þeim áætlunarreikningum sem sendir hafa verið.

6. gr.

Húseigandi, eða sá sem skráður er fyrir mæli, er ábyrgur fyrir því að tilkynna flutning og er ábyrgur fyrir orkunotkun þar til tilkynning um annan notanda hefur verið móttekin hjá hitaveitunni.

7. gr.

Verð fyrir afnot af heitu vatni er eftirfarandi:

A. Samkvæmt vatnsmæli fyrir hvern rúmmetra vatns:

Grunnverð kr. 157.

B. Mælagjald – fast gjald.

Mælir

Grunnverð kr./dag

Ársgrundvöllur, kr.

15 og 20 mm

71,89

26.241

25 mm

242,10

88.367

32 mm

467,49

170.635

40 mm

951,67

347.361

50 mm

1835,92

670.110

Um afnot af vatni hitaveitu til annarra nota en húshitunar gilda sérstök gjöld sem ákveðin eru hverju sinni en þó með hliðsjón af gjaldskrá hitaveitunnar.

C. Önnur gjöld:

Umbeðinn aflestur af mælum

1.530 kr. m. vsk.

Lokunargjald

2.075 kr. m. vsk.

Seðilgjald

210 kr. m. vsk.

Skiptigjald

2.554 kr. m. vsk.

Innheimtugjald m. vsk. er í höndum innheimtuaðila

 

8. gr.

Bráðabirgðaheimlagnir.

Stofngjald:

 

Lögn:

Grunnverð kr.

20 mm

22.643      

25 mm

28.622      

32 mm

29.577      

  

Lengdargjald:

 

20 mm kr./metra

3.180      

25 mm kr./metra

4.068      

32 mm kr./metra

4.068      

Lengdargjald er greitt fyrir hvern metra í heimlögn sem lögð er til bráðabirgða. Ef bráða­birgða­heimlögn verður síðar notuð sem aðalheimlögn fyrir hús, greiðist ekkert lengdar­gjald vegna bráðabirgðatengingar. Bráðabirgðaheimlagnir skulu aflagðar innan 24 mán­aða frá tengingu þeirra.

9. gr.

Aðalheimæðar – heimtaugagjöld:

Stofngjald:

 

Lögn:

Inntaksgjald kr.

20 mm

416.643     

25 mm

541.634     

32 mm

731.206     

40 mm

1.023.688     

50 mm

1.484.182     

Tengigrind kr.

53.433     

Tengigjald kr.

53.433     

Tengigrind er ekki innfalin í heimæðargjaldi.

Ef heimlagnagjald stendur ekki undir kostnaði í frágengnu hverfi er heimlagnagjald fyrir nýja eða stækkaða heimlögn greitt samkvæmt kostnaðaráætlun.

Heimæð hitaveitu liggur frá götulögn eða tengibrunni og inn fyrir húsvegg húsveitu að inntaksloka.

Aukagjald fyrir hvern mæli umfram þann fyrsta skal vera 29.605 kr. m.vsk.

10. gr.

Lengdargjald í dreifbýli skal vera samkvæmt kostnaði en lengdargjald í þéttbýli er 8.400 kr. m.vsk. og er greitt fyrir hvern metra umfram 20 metra innan lóðamarka.

11. gr.

Önnur atriði til skýringa:

Stærð heimlagnar fer eftir hússtærð og starfsemi sem þar er áætluð. Húseigandi og hönnuður ákveða stærð heimlagna en hitaveita Fjarðabyggðar ákveður lágmarksstærð heimlagna fyrir íbúðarhús.

Eigandi íbúðarhúss/fyrirtækis þarf að sækja tímanlega um heimlögn á þar til gerðu eyðublaði, hvort sem um er að ræða nýja heimlögn, færslu, breytingu eða stækkun á eldri heimlögn. Teikningar skulu fylgja umsókn.

Heimlagnargjald skal greitt fyrir hverja heimlögn er tengir húsveitu við kerfi veitunnar. Heimlagnargjald skal greitt áður en vinna við lagningu hefst.

Þegar heimlögn er stækkuð eða þegar heimlögn er breytt samkvæmt beiðni við­skipta­vinar, skal greiða fyrir breytinguna samkvæmt samkomulagi og skal tekið mið af raun­kostnaði við breytinguna.

Heimilt er að veita afslátt af tengigjöldum ef tengikostnaður er sannanlega lægri en gjald­skrá miðar við.

Heimilt er að leggja álag á tengigjald ef tengikostnaður er sannanlega hærri en gjaldskrá miðar við.

Gjaldskrá þessi, sem samþykkt er af bæjarráði og bæjarstjórn Fjarðabyggðar, er hér með staðfest samkvæmt orkulögum nr. 58/1967, með síðari breytingum, til að öðlast gildi 1. janúar 2015 og birtist til eftirbreytni öllum sem hlut eiga að máli. Jafnframt er úr gildi felld eldri gjaldskrá sama efnis, nr. 109/2014.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 17. desember 2014.

F. h. iðnaðar- og viðskiptaráðherra,

Kristján Skarphéðinsson.

Hreinn Hrafnkelsson.

B deild - Útgáfud.: 30. desember 2014